Landspítali
Landspítali
Landspítali

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar hjarta-, lungna- og augnskurðdeildar og nýrnalækningadeildar 12G

Við sækjumst eftir metnaðarfullum og framsæknum hjúkrunarfræðingi sem hefur áhuga á klínísku leiðtogahlutverki, stjórnun og markvissu gæða- og umbótastarfi. Í boði er fjölbreytt og krefjandi starf þar sem mikil áhersla er lögð á fagmennsku, teymisvinnu og öryggi sjúklinga.

Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með hjúkrunardeildarstjóra og öðrum stjórnendum að skipulagningu hjúkrunar, innleiðingu nýjunga og þróun starfshátta sem byggja á gagnreyndri þekkingu og stuðla að stöðugum umbótum. Starfið er vaktavinna.

Deildin er 16 rúma legudeild sem tilheyrir hjarta-, augn- og krabbameinsþjónustu og er staðsett á 2. hæð á Landspítala við Hringbraut. Deildin sinnir sjúklingum sem fara í hjarta-, lungna- og/ eða augnaðgerðir ásamt sjúklingum með alvarlega nýrnabilun og önnur flókin lyflæknisfræðileg viðfangsefni. Starfsemin er krefjandi og fjölbreytt og byggir á sterkri þverfaglegri samvinnu.

Á deildinni starfar öflugur og samhentur hópur ýmissa starfstétta s.s. hjúkrunarfræðinga, lækna, sjúkraliða, ritara, auk annarra stoðstétta sem koma eftir þörfum s.s. sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar. Lögð áhersla á öryggi sjúklinga og starfsfólks, samvinnu teyma og stöðugar umbætur.

Við leggjum áherslu á góðar móttökur og markvissa einstaklingshæfða aðlögun nýs starfsfólks. Starfshlutfall er 80-100% og er starfið laust frá 1. maí 2026 eða eftir samkomulagi.

Menntunar- og hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Starfsreynsla af hjúkrun
Þekking á stjórnun og leiðtogahæfni
Framúrskarandi samskipta og samskiptahæfni
Góð íslensku- og enskukunnátta
Skipulögð og fagleg vinnubrögð
Sjálfstæði í starfi og hæfni til teymisvinnu
Tölvufærni og góð aðlögunarhæfni
Jákvætt viðmót og þjónustulund
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfar í nánu samstarfi við hjúkrunardeildarstjóra og að skipulagningu og þróun starfseminnar/deildarinnar
Ber ábyrgð á tilteknum verkefnum í umboði hjúkrunardeildarstjóra
Er leiðandi í klínísku starfi, gæðamálum, öryggis- og umbótastarfi
Ber ábyrgð á starfsemi, skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar, mönnunar og rekstri deildar í fjarveru hjúkrunardeildarstjóra
Tekur virkan þátt í mótun liðsheildar og eflingu starfsanda
Auglýsing birt18. mars 2026
Umsóknarfrestur1. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (32)
Landspítali
Sérfræðilæknir á Sýkla- og veirufræðideild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar - Spennandi störf á meltingar- og nýrnadeild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur á sviði storkurannsókna á rannsóknarkjarna
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á kvenlækningadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í krabbameinsþjónustu
Landspítali
Landspítali
Ertu sérfræðingur í hjúkrun?
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á Líknardeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á lyflækningadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á nýja bráðamatsdeild
Landspítali
Landspítali
Sérhæfður starfsmaður í ræstingum
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar á nýja bráðamatsdeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á barnadeild Barnaspítala Hringsins
Landspítali
Landspítali
Skrifstofumaður/ Teymisstjóri í ritaraþjónustu dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga
Landspítali
Landspítali
Aðstoðarmaður deildarstjóra á öldrunardeild L5
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Vertu hluti af öflugu teymi iðjuþjálfa á Landakoti
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á bæklunarskurðdeild AB5 í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Næringarfræðingur á næringarstofu
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í lungnalækningum
Landspítali
Landspítali
Lífeinda- eða náttúrufræðingur á sýkla- og veirufræðideild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í fæðingarteymi
Landspítali
Landspítali
Geislafræðingur - Áhugavert starf á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð
Landspítali
Landspítali
Sálfræðingur á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í gigtarlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar - Gjörgæsla Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Teymisstjóri hjúkrunar á Heimaspítala barna
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í brjóstholsskurðlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri göngudeildar innkirtla- og gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali