Landspítali
Landspítali
Landspítali

Fjölbreytt starf í býtibúri og móttöku barna- og unglingageðdeildar

Við óskum eftir að ráða til starfa öfluga liðsmanneskju í okkar góða hóp á barna- og unglingageðdeild. Starfið felst í umsjón með umhverfi legudeildar s.s. undirbúningi og frágangi matmálstíma, línherbergi, þvottahúsi, geymslurýmum, starfsmannaaðstöðu og almennum rýmum og skipulagi á nauðsynlegu viðhaldi. Að auki felst hluti starfsins í því að vera í teymi heilbrigðisritara og sinna störfum í móttöku göngudeildar. Starfið byggir á samvinnu þar sem mikilvægt er að sérhver starfsmaður fái að nýta styrkleika sína.

Leitað er eftir þjónustulundaðri, lausnamiðaðri og jákvæðri manneskju sem er sjálfstæð og skipulögð í starfi. Viðkomandi er virkur þátttakandi í starfsemi deildanna og þarf að geta sýnt sveigjanleika í líflegu starfsumhverfi. Gert er ráð fyrir að viðkomandi sæki námskeið í grunnendurlífgun og sé vel að sér varðandi sóttvarnir og smitgát.

Starfshlutfall er 60%, fyrri hluta dags alla virka daga. Upphafsdagur er samkomulagsatriði.

Barna- og unglingageðdeild samanstendur af þremur deildum á Landspítala; legudeild, dagdeild og göngudeild. Þar er veitt sérhæfð og fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta við börn sem þarfnast sjúkrahúsþjónustu vegna geðræns vanda. Á deildunum starfa samtals um 100 einstaklingar í fjölskylduvænu starfsumhverfi. Þjónustan er í stöðugri framþróun og kapp er lagt á notendamiðaða þjónustu og styttingu biðtíma.

Menntunar- og hæfniskröfur
Menntun sem nýtist í starfi
Jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði, drifkraftur og sveigjanleiki
Hæfni og geta til að starfa sjálfstætt sem og í teymi
Stundvísi, áreiðanleiki, hreinlæti og snyrtimennska
Hreint sakavottorð
Helstu verkefni og ábyrgð
Undirbúningur matmálstíma með því að sækja matarvagn og bera mat á borð
Frágangur í matsal og eldhúsi eftir matmálstíma
Ber ábyrgð á að almennt rými deildar sé snyrtilegt
Ber ábyrgð á að þvottahús og lín sé snyrtilegt
Er í jákvæðum og uppbyggilegum samskiptum við börn og fjölskyldur sem eru í þjónustu
Yfirumsjón með pöntun og frágangi matvæla og nauðsynjavara.
Móttökustörf í byrjun dags, símasvörun og skráning á komu barna
Stuðlar að jákvæðum starfsanda og menningu sálræns öryggis
Auglýsing birt23. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Dalbraut, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (32)
Landspítali
Sérfræðilæknir á Sýkla- og veirufræðideild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar - Spennandi störf á meltingar- og nýrnadeild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur á sviði storkurannsókna á rannsóknarkjarna
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á kvenlækningadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í krabbameinsþjónustu
Landspítali
Landspítali
Ertu sérfræðingur í hjúkrun?
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á Líknardeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á lyflækningadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á nýja bráðamatsdeild
Landspítali
Landspítali
Sérhæfður starfsmaður í ræstingum
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar á nýja bráðamatsdeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á barnadeild Barnaspítala Hringsins
Landspítali
Landspítali
Skrifstofumaður/ Teymisstjóri í ritaraþjónustu dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga
Landspítali
Landspítali
Aðstoðarmaður deildarstjóra á öldrunardeild L5
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Vertu hluti af öflugu teymi iðjuþjálfa á Landakoti
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á bæklunarskurðdeild AB5 í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Næringarfræðingur á næringarstofu
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í lungnalækningum
Landspítali
Landspítali
Lífeinda- eða náttúrufræðingur á sýkla- og veirufræðideild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í fæðingarteymi
Landspítali
Landspítali
Geislafræðingur - Áhugavert starf á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð
Landspítali
Landspítali
Sálfræðingur á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í gigtarlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar - Gjörgæsla Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Teymisstjóri hjúkrunar á Heimaspítala barna
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í brjóstholsskurðlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri göngudeildar innkirtla- og gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali