

Ertu sérfræðingur í hjúkrun?
Göngudeild smitsjúkdóma í Fossvogi auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings í hjúkrun með áherslu á hjúkrun skjólstæðinga með smitsjúkdóma. Sérfræðingurinn mun gegna lykilhlutverki í þróun, samræmingu og eflingu þjónustu við skjólstæðingahóp deildarinnar í nánu samstarfi við aðrar fagstéttir.
Sérfræðingur í hjúkrun starfar samkvæmt starfslýsingu en meginhlutverk, auk klínískra starfa, er ráðgjöf og kennsla til starfsfólks og nemenda auk rannsóknar- og þróunarvinnu. Enn fremur felur starfið í sér uppbyggingu, samræmingu og skipulagningu þjónustu við sjúklinga í samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir.
Á göngudeildina koma sjúklingar í viðtal og eftirlit til lækna og hjúkrunarfræðinga vegna smitsjúkdóma í kjölfar sjúkrahúslegu, í reglulegt eftirlit vegna langvinnra eða alvarlegra sjúkdóma og í ýmsar rannsóknir og meðferðir.
Íslenska




























































