

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild lungna A3
Laust er til umsóknar starf hjúkrunarfræðings á göngudeild lungna á A3 í Fossvogi.
Við bjóðum góða starfsaðlögun með reyndum hjúkrunarfræðingum og tækifæri til að þróa starfsemi einingar í samvinnu við teymi hjúkrunarfræðinga og sérfræðinga.
Starfið felur í sér uppvinnslu, meðferð og eftirfylgd einstaklinga með lungnasjúkdóma sem þarfnast sérhæfðrar þjónustu uppvinnslu og meðferðar, sem dæmi eru þetta einstaklingar:
Starfið felur í sér uppvinnslu, meðferð og eftirfylgd einstaklinga með lungnasjúkdóma sem þarfnast sérhæfðrar þjónustu uppvinnslu og meðferðar, sem dæmi eru þetta einstaklingar:
-
Í greiningarferli vegna hnúts í lunga
-
Í eftirliti eftir meðferð við lungnakrabbameini
-
Með millivefssjúkdóma á sérhæfðum lyfjum
-
Með sarklíki
-
Með lungnaháþrýsting og eru á sérhæfðari meðferð
-
Í uppvinnslu vegna mögulegrar lungnaskipti og eftirlit eftir lungnaskipti
-
Sem hafa fengið alvarlega blóðtappa í lungu
-
Með langvinna lungnateppu
Starfið felst einnig í því að koma að og þróa eftirfylgd þessara hópa enn frekar, bæta þjónustu og koma að tæknilegri framþróun. Unnið er í samvinnu við teymisstjóra lungna, lungnahjúkrunarfræðinga, í þéttu samstarfi við lungnalækna, lungnarannsókn og súrefnisþjónustu Landspítala.
Unnið er í dagvinnu og er vinnutími sveigjanlegur. Starfshlutfall er 50-100% og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Hjúkrun, fræðsla, stuðningur og eftirfylgd við ákveðna hópa lungnasjúklinga á göngudeild
- Fræðsla og kennsla til sjúklinga og aðstandenda
- Þróun o guppbygging þjónustu á deild
- Önnur verkefni á deild í samráði við deildarstjóra
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Góð samskiptahæfni
- Sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
- Reynsla af hjúkrun lungnasjúklinga er æskileg
- Íslenskukunnátta áskilin
Íslenska




























































