Landspítali
Landspítali
Landspítali

Málastjóri í geðrofs- og samfélagsgeðteymi - dagvinna

Það er laus staða málastjóra í geðrofs- og samfélagsgeðteymi.

Við óskum eftir háskólamenntuðum einstaklingi með áhuga á þverfaglegri teymisvinnu og vinnu með fólki með geðrænar áskoranir. Starfsemin er staðsett á göngudeild Klepps. Starfsaðlögun er markviss og einstaklingshæfð og miklir möguleikar eru til starfsþróunar. Staðan er laus frá 1. maí 2026 eða eftir samkomulagi. Um framtíðarstarf og dagvinnu er að ræða.

Meginverkefni teymanna er að veita fólki sem greinst hefur með alvarlega geðsjúkdóma og aðstandendum þeirra þverfaglega og einstaklingsmiðaða þjónustu sem byggir á batamiðaðri hugmyndafræði og skaðaminnkandi nálgun. Þjónustan fer fram á göngudeildinni, en einnig er þjónusta veitt í nærumhverfi þjónustuþeganna.

Markmið meðferðarinnar er að stuðla að bata, rjúfa félagslega einangrun og auka virkni og lífsgæði í daglegu lífi. Málastjórum standa til boða mikil tækifæri til vaxtar í starfi með markvissri handleiðslu og faglegum stuðningi. Í teyminu starfa um 25 fagaðilar; læknar, hjúkrunarfræðingar, félagsráðgjafar, sálfræðingar, atvinnuráðgjafar, jafningjar og málastjórar með fjölbreyttan bakgrunn.

Hlutverk málastjóra er fjölbreytt og felst meðal annars í mati á geðrænum einkennum og mati á einstaklingsbundnum þörfum. Málastjóri sinnir meðferð og eftirfylgd, þróun meðferðaráætlana og vöktun og mati á árangri þjónustunnar. Málastjóri er einnig í samskiptum við aðstandendur og heldur utan um þá meðferð og endurhæfingu sem einstaklingurinn þarf á að halda. Virkt umbótastarf er á deildinni, og mikil tækifæri til að leiða verkefni og hafa áhrif á þróun þjónustunnar.

Góður starfsandi ríkir á deild og starfsumhverfið er fjölskylduvænt. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Eygló, deildarstjóra, ef óskað er eftir frekari upplýsingum um starfið.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólapróf á sviði heilbrigðisvísinda
Framhaldsnám sem nýtist í starfi er kostur
Faglegur metnaður og einlægur áhugi á að þjónusta og styðja einstaklinga með geðsjúkdóma
Reynsla af starfi í geðþjónustu Landspítala eða reynsla af sambærilegu starfi er kostur
Mjög góð samskiptahæfni
Jákvætt hugarfar, metnaður og áhugi á að starfa í þverfaglegu teymi
Stundivísi, áreiðanleiki og öguð vinnubrögð
Skipulagsfærni, sjálfstæði og frumkvæði
Góð almenn tölvukunnátta og geta til að læra nýjungar
Góð færni í íslensku og ensku, önnur tungumálakunnátta er kostur
Bílpróf
Helstu verkefni og ábyrgð
Málastjórn, þ.m.t. greining á þjónustuþörf og færni og gerð meðferðaráætlana, regluleg samskipti, hvatning, fræðsla, leiðbeiningar og heildrænn stuðningur
Virk þátttaka í þverfaglegu samstarfi
Virk þátttaka í meðferð einstaklinga og stuðningi við aðstandendur
Virk þátttaka í framþróun, uppbyggingu þjónustunnar og umbótastarfi deildar
Stuðla að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis
Önnur fjölbreytt verkefni
Auglýsing birt24. mars 2026
Umsóknarfrestur8. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (32)
Landspítali
Sérfræðilæknir á Sýkla- og veirufræðideild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar - Spennandi störf á meltingar- og nýrnadeild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðingur á sviði storkurannsókna á rannsóknarkjarna
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á kvenlækningadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í krabbameinsþjónustu
Landspítali
Landspítali
Ertu sérfræðingur í hjúkrun?
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á Líknardeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á lyflækningadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á nýja bráðamatsdeild
Landspítali
Landspítali
Sérhæfður starfsmaður í ræstingum
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar á nýja bráðamatsdeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á barnadeild Barnaspítala Hringsins
Landspítali
Landspítali
Skrifstofumaður/ Teymisstjóri í ritaraþjónustu dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga
Landspítali
Landspítali
Aðstoðarmaður deildarstjóra á öldrunardeild L5
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Vertu hluti af öflugu teymi iðjuþjálfa á Landakoti
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á kviðarhols- og þvagfæraskurðdeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á bæklunarskurðdeild AB5 í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Næringarfræðingur á næringarstofu
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í lungnalækningum
Landspítali
Landspítali
Lífeinda- eða náttúrufræðingur á sýkla- og veirufræðideild
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í fæðingarteymi
Landspítali
Landspítali
Geislafræðingur - Áhugavert starf á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð
Landspítali
Landspítali
Sálfræðingur á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í gigtarlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar - Gjörgæsla Hringbraut
Landspítali
Landspítali
Teymisstjóri hjúkrunar á Heimaspítala barna
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í brjóstholsskurðlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunardeildarstjóri göngudeildar innkirtla- og gigtarsjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali