

Hjúkrunardeildarstjóri á almennri endurhæfingardeild aldraðra
Við leitum eftir kraftmiklum stjórnanda til að leiða og efla starfsemi almennrar endurhæfingardeildar aldraðra L2. Starfið er unnið í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra, forstöðuhjúkrunarfræðing og aðra stjórnendur og samstarfsfólk.
Almenn endurhæfingardeild er staðsett á Landakoti í hjarta Reykjavíkur í fallegu og friðsælu umhverfi. Deildin veitir öldruðum styttri endurhæfingu þar sem markmiðið er að efla færni einstaklings við athafnir daglegs lífs, auka hreyfigetu og stuðla að farsælli og öruggri útskrift heim. Lögð er áhersla á að efla gæðamenningu á deildinni, styðja vel við aðstandendur og skapa sterkt og styðjandi starfsumhverfi þar sem fagmennska og þróun starfsfólks eru í forgrunni.
Hjúkrunardeildarstjóri er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1.maí 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðuhjúkrunarfræðingur endurhæfingarþjónustu.
- Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun starfseminnar, setur markmið um gæði og öryggi og tryggir eftirfylgni
- Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsfólks á deildinni
- Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði deildarinnar
- Hefur forystu um áframhaldandi uppbyggingu, skipulag og þróun deildarinnar í samráði við yfirlækna og forstöðufólk endurhæfingarþjónustu
- Tryggir að öryggis-, gæða- og umbótastarfi sé framfylgt
- Þátttaka í vísinda- og rannsóknarstarfi innan öldrunar- og endurhæfingarþjónustu
- Starfar náið með deildarstjórum hjúkrunar innan öldrunar- og endurhæfingarþjónustu og er virkur þátttakandi í samstarfi þeirra á milli
- Framfylgir stefnu og áherslum framkvæmdastjórnar Landspítala
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
- Framhaldsmenntun í hjúkrun og/eða önnur viðbótarmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
- Farsæl reynsla af uppbyggingu og stýringu mannauðs er kostur
- Farsæl reynsla af stjórnun og rekstri er kostur
- Leiðtogahæfni, áhugi og vilji til að leiða breytingar og umbætur
- Mjög góð hæfni í samskiptum og jákvætt viðmót
- Hæfni til að leiða teymi
- Sýn og hæfni til að leiða faglega þróun hjúkrunar og gæða- og öryggismál
- Jákvætt lífsviðhorf, lausnamiðuð nálgun og framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
- Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
- Góð íslenskukunnátta
Íslenska




























































