
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Heimastuðningur Norðurmiðstöð sumarstarf
Ef þú ert félagslynd og lífsglöð manneskja sem hefur gaman af því að a ðstoða fjölbreyttan hóp við að lifa innihaldsríku lífi lengur heima hjá sér, þá erum við að leita að þér!
Ef þú ert félagslynd og lífsglöð manneskja sem hefur gaman af því að aðstoða fjölbreyttan hóp við að lifa innihaldsríku lífi lengur heima hjá sér, þá erum við að leita að þér!Norðurmiðstöð óskar eftir starfsfólki til að sinna heimastuðningi á daginn. Um er að ræða vaktavinnu og dagvinnu, starfshlutfall er samkomulag.
Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
Heimastuðningur veitir þjónustu eftir stuðningsáætlun sem gerð hefur verið við notendur á heimilum þeirra, aðstoð við almenn heimilisstörf, göngutúra, búðarferðir, félagslegan stuðning, persónulega umhirðu o.fl.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af heimaþjónustu eða umönnunarstörfum æskileg
- Viðkomandi þarf að vera eldri en 18 ára
- Bílpróf
- Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Vandvirkni og sjálfstæði í starfi
- Hæfni til að bregðast við óvæntum aðstæðum
- Íslenskukunnátta á bilinu B1-C1 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Fríðindi í starfi
- Styttri vinnuvika
- Mötuneyti
Auglýsing birt19. mars 2026
Umsóknarfrestur3. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Efstaleiti 1, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í Hamrahlíð Vinna og Virkni
Hamrahlíð Vinna og Virkni

Starfsmaður í skammtímadvöl – Heiðarholt
Suðurnesjabær

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali

Hjúkrunarfræðingar - Spennandi störf á meltingar- og nýrnadeild
Landspítali

Aðstoðarkona óskast
NPA miðstöðin

Kjörbúðin Blönduósi - Umsjón með bakaríi
Kjörbúðin

Sérfræðingur á sviði storkurannsókna á rannsóknarkjarna
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á kvenlækningadeild
Landspítali

Heimilislæknir - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur í krabbameinsþjónustu
Landspítali

Ertu sérfræðingur í hjúkrun?
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins