

Hjúkrunarfræðingur í málaflokki heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir
Velferðarsvið óskar eftir metnaðarfullum og lausnamiðuðum hjúkrunarfræðingi til starfa í málaflokki heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir.
Ef þú brennur fyrir því að veita hjúkrun á vettvangi, mæta fólki af virðingu, lausnamiðaðri nálgun og fagmennsku við krefjandi aðstæður þá gæti þetta verið starfið fyrir þig.
Við leitum að hjúkrunarfræðingi í okkar teymi til þess að starfa á vettvangi, mæta einstaklingum þar sem þeir eru staddir og veita hjúkrun í þeirra umhverfi þar sem þörfin er mest.
Hjúkrunarfræðingur er staðsettur og starfar innan málaflokks heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir, þar sem dagleg þjónusta er veitt. Næsta yfirmaður og faglegt bakland er innan SELMU teymis sem er sérhæft teymi innan heimaþjónustu.
Starfsmaður gegnir því lykilhlutverki við að brúa bilið milli heimahjúkrunar og vettvangshjúkrunar og tryggja að einstaklingar fái samfellu í þjónustu.
Um er að ræða starf í dagvinnu og er starfshlutfall 100%.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánara samkomulagi.
- Skipuleggja og veita hjúkrunarþjónustu á vettvangi í neyðarskýlum og búsetu í málaflokki heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir
- Veita sérhæfða hjúkrunarmeðferð og aðlaga þjónustu að flóknum þörfum
- Tryggja samfellu í þjónustu og vera tengiliður við heilbrigðisstofnanir og aðra þjónustuaðila
- Teymisvinna með starfsfólki í málalfokki heimilislausra með miklar og flóknar þjónustuþarfir
- Skrá meðferð og þjónustu í sjúkraskrá samkvæmt lögum
- Leiðbeina samstarfsfólki, taka á móti nemum og styðja nýliða
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Þekking og reynsla af hjúkrun fyrir einstaklinga með vímuefnavanda
- Þekking og reynsla af vettvangsstarfi og geta til þess að vinna í óhefðbundnu, krefjandi umhverfi
- Frumkvæði og faglegur metnaður
- Sjálfstæði vinnubrögð, sveigjanleiki og hæfni til að forgangsraða verkefnum
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Íslenskukunnátta á bilinu B2-C2 (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma)
- Þekking á sjúkraskrárkerfi Sögu
- áhugavert og áhrifamikið starf þar sem enginn dagur er eins
- Faglegt og hlýlegt teymi sem styður þig í þínu starfi
- Tækifæri til að vinna á vettvangi og þróa þjónustu í málaflokki sem skiptir máli
- Heilsutengd hlunnindi starfsfólks Reykjavík
Íslenska



































