
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Öryggisvörður – Vitatorg/þjónustuíbúðir - sumarstarf
Vesturmiðstöð óskar eftir að ráða starfsmann til að sinna öryggisgæslu á Vitatorgi. Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu, kvöld- og næturvaktir. Umsækjandi þarf að vera eldri en 20 ára.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Öryggisvarsla og eftirlit með íbúðum og húseignum á Lindargötu 57-59-61 og 66
- Eftirlitsgöngur skv. eftirlitskerfi
- Fylgjast með öryggiskerfi hússins
- Mikil samskipti við íbúa og gesti Vitatorgs
- Bregðast við og hafa samskipti við íbúa sem þurfa að neyðaraðstoð að halda
- Önnur þau verkefni sem falin eru af yfirmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla sem öryggisvörður æskileg
- Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Vandvirkni og sjálfstæði í starfi
- Sveigjanleiki í starfi
- Getu til að bregðast við óvæntum aðstæðum
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
- Góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt11. mars 2026
Umsóknarfrestur31. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Lindargata 57, 101 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)



