
SÁÁ
SÁÁ er almannasamtök með um sjö þúsund félagsmenn. Samtökin annast rekstur fjögurra meðferðarstofnana þar sem heilbrigðisstarfsmenn veita áfengis- og vímuefnasjúklingum faglega heilbrigðisþjónustu í hæsta gæðaflokki.
Þetta eru sjúkrahúsið Vogur, Vík á Kjalarnesi og göngudeildirnar í Von, Efstaleiti 7 í Reykjavík og Hofsbót 4 á Akureyri.

Næturvarsla - SÁÁ
SÁÁ leitar að ábyrgum og traustum einstaklingi til starfa við næturvörslu. Starfið felur meðal annars í sér öryggiseftirlit, húsumsjón og samskipti við skjólstæðinga og starfsfólk. Næturvarsla er mikilvægur hluti af starfsemi meðferðarstöðva SÁÁ á Vogi og Vík og stuðlar að öruggu og góðu umhverfi fyrir skjólstæðinga og starfsfólk.
Um er að ræða 100% starf, þar sem unnið er á átta tíma næturvöktum, frá kl. 00:00 til 08:00, sjö nætur í röð og síðan sjö daga vaktafrí.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Reglubundið eftirlit með húsnæði, búnaði og nánasta umhverfi.
- Öryggis- og eldvarnareftirlit.
- Eftirlit með öryggiskerfum og tæknilegum kerfum húsnæðis.
- Viðbrögð við bilunum, frávikum og óvæntum aðstæðum.
- Samskipti og samvinna við skjólstæðinga og heilbrigðisstarfsfólk.
- Skráning og miðlun upplýsinga um atvik og atriði sem þarfnast eftirfylgni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund.
- Sjálfstæð, ábyrg og skipulögð vinnubrögð.
- Árvekni, áreiðanleiki og góð dómgreind.
- Hæfni til að bregðast yfirvegað við óvæntum aðstæðum.
- Góð íslensku- og enskukunnátta.
- Almenn tölvukunnátta.
- Þekking á skyndihjálp, brunavörnum og öryggismálum er kostur.
- Reynsla af sambærilegum störfum er kostur.
Auglýsing birt24. nóvember 2026
Umsóknarfrestur6. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Stórhöfði 45, 110 Reykjavík
Vík - Kjalarnes
Starfstegund
Hæfni
SamviskusemiSkyndihjálpTeymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (9)

Security Officer at Keflavík Airport Summer 2027
Öryggismiðstöðin

Staðarskáli - Hrútafirði
N1

Öryggisvörður í spennandi verkefni á Akureyri
Securitas

Hlutastarf í barnavöruverslun
Nine Kids

Viltu vinna í íþróttahúsi ?
ÍR

Heimsendingar á kvöldin - tímabundið starf
Dropp

Gestgjafar Sky Lagoon/Hosts at Sky Lagoon
Sky Lagoon

Óska eftir NPA aðstoðarfólki í hlutastarf
NPA miðstöðin

Starfsmaður við svellagerð og húsvörslu
Skautahöllin Akureyri