Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Deildarstjóri Rafrænnar miðstöðvar

Velferðarsvið leitar að metnaðarfullum deildarstjóra til að stýra rafrænni miðstöð. Á vettvangi rafrænnar miðstöðvar er leitast við að leysa úr málum með skjótum og skilvirkum hætti en hún er almennt fyrsti viðkomustaður íbúa í leit að velferðarþjónustu borgarinnar.

Rafræn miðstöð starfar náið með öllum fjórum miðstöðvum borgarinnar þar sem íbúar geta nálgast fjölbreytta þjónustu, ráðgjöf og upplýsingar á sviði velferðar-, skóla- og frístundaþjónustu.

Deildarstjóri rafrænnar miðstöðvar veitir faglega forystu og leiðir umbætur í þjónustu rafrænnar miðstöðvar. Rafræn miðstöð skiptist í tvö teymi, þjónustuteymi og ráðgjafateymi, annast móttöku umsókna og veitir 2. og 3. stigs símaráðgjöf og leiðbeiningar til íbúa. Jafnframt hefur hún það hlutverk að framfylgja þjónustustefnu.

Í samræmi við mannréttinda- og velferðarstefnu Reykjavíkurborgar er lögð rík áhersla á að starfsstaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins. Við hvetjum fólk af öllum kynjum, fatlað fólk og fólk af ólíkum menningarlegum bakgrunni til að sækja um.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á rafrænni þjónustu til einstaklinga ásamt móttöku viðskiptavina og leiðbeiningum um þjónustu
  • Ábyrgð á faglegu starfi, rekstri, þ.m.t. starfsmannamálum, uppbyggingu og skipulagi
  • Ábyrgð á þróun og nýbreytni í þjónustunni
  • Yfirsýn yfir starfsemi og að unnið sé á grundvelli gæðaferla og árangursmats
  • Samræmingar- og eftirlitshlutverk með þáttum eins og viðmóti, aðgengi og þjónustuferlum
  • Ábyrgð á þverfaglegu samstarfi og samvinnu við fagskrifstofur velferðarsviðs, miðstöðvar, svið borgarinnar og samstarfsstofnanir
Menntunar- og hæfniskröfur

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, framhaldsmenntun æskileg
  • Viðtæk þekking og reynsla af ráðgjöf
  • Reynsla af rafrænni þjónustu
  • Reynsla af stjórnun, umbótastarfi og teymisvinnu
  • Þekking á lagaumhverfi og stjórnsýslu sveitarfélaga
  • Leiðtogahæfileikar og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Metnaður, frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
  • Íslenskukunnátta C1 (samkvæmt samevrópskum tungumálaramma)
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar
Auglýsing birt24. mars 2026
Umsóknarfrestur13. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar