

Deildarstjóri í búsetukjarna í Brautarholti
Við leitum að drífandi og metnaðarfullum þroskaþjálfa og/eða atferlisfræðing í stöðu deildarstjóra á búsetukjarna fyrir fatlaða í Brautarholti!
Íbúðakjarninn að Brautarholti 28 auglýsir eftir öflugum og framsæknum einstakling í stöðu deildastjóra. Um er að ræða fullt starf og er ráðning ótímabundin.
Deildarstjóri vinnur að verkefnum sem krefjast sérþekkingar ásamt almennum störfum með fötluðu fólki í samræmi við ráðningasamning samkvæmt lögum um málefni fatlaðs fólks nr. 38/2018.
Í Brautarholti er unnið eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar og sjálfstæðs lífs, auk þess vinnum við að því að hámarka virkni og færni íbúa. Deildarstjóri leggur sig fram við að skapa öfluga liðsheild og stuðla að einstaklingsmiðuðum vinnubrögðum í þágu þjónustunotenda.
- Stýra og hafa umsjón með daglegri þjónustu við íbúa í samráði við forstöðukonu.
- Vinna með íbúum með einstaklingsmiðaðri nálgun.
- Hafa yfirsýn yfir verklag auk ábyrgðar á daglegri starfsemi.
- Veita leiðsögn og taka virkan þátt í þróunar- og uppbyggingarvinnu varðandi faglegt starf.
- Stýra daglegum störfum starfsfólks í samráði við forstöðukonu.
- Starfsréttindi sem þroskaþjálfi og/eða atferlisfræðimenntun eða háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Reynsla af skipulagi faglegs starfs.
- Þekking á hugmyndafræðinni um þjónandi leiðsögn.
- Frumkvæði, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð.
- Góð skipulags- og samskipafærni.
- Áhugi á málefnum fólks með fötlun.
- Jákvæðni og sveigjanleiki.
- Þekking og reynsla af starfi í málalokknum.
- Góð íslenskukunnátta (B2 eða hærra samkvæmt samevrópskum matsramma).
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög, sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknir skulu innihalda starfsferilskrá sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt kynningarbréfi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildigunnur Eldjárn forstöðukona í Brautarholti 28 í síma 869-1041 eða á netfangið hildigunnur.s.e.kristjánsdó[email protected].
Íslenska



































