
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Sumarstarf á íbúðarkjarna í Grafarvogi
Íbúðarkjarninn Móavegi 10 óskar eftir öflugu starfsfólki í sumarafleysingar. Starfshlutfall er 80-90 % eða eftir samkomulagi. Unnið er á blönduðum vöktum svo sem morgun-, kvöld-, helgar- og næturvöktum.
Þjónustan miðar að því að efla færni og lífsgæði íbúa sem gerir þeim kleift að búa sjálfstætt og lifa sjálfstæðu lífi með það að markmiði að aðstoða þá í að skapa og þróa ný tækifæri í sínu lífi. Stefnan er að veita ávallt framúrskarandi gæðaþjónustu til íbúana. Í boði er spennandi starf, þar sem veitt er einstaklingsbundin þjónusta í samræmi við hugmyndafræðina um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsagnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að styðja einstaklinga við athafnir daglegs lífs s.s. við heimilishald og samfélagsþátttöku.
- Að styðja einstaklinga til félagslegrar þátttöku s.s. að rækta félagstengsl, stunda afþreyingu og að sækja menningarviðburði.
- Að vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan íbúa og aðstoða þá varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni.
- Starfsmaður vinnur eftir stefnu Reykjavíkurborgar í málefnum fatlaðs fólks til að efla færni, auka sjálfstæði, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og auka lífsgæði þeirra.
- Önnur þau störf sem starfsmanni kunna að vera falin af yfirmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af starfi með fötluðum æskileg.
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, skipulagshæfni, stundvísi og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Góð íslenskukunnátta B1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
- Æskilegt er að umsækjandi hafi náð 20 ára aldri.
Auglýsing birt24. mars 2026
Umsóknarfrestur10. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Móavegur 10
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í Hamrahlíð Vinna og Virkni
Hamrahlíð Vinna og Virkni

Starfsmaður í skammtímadvöl – Heiðarholt
Suðurnesjabær

Aðstoðarkona óskast
NPA miðstöðin

Heimilislæknir - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Hjúkrunarfræðingur - Geðheilsuteymi taugaþroskaraskana HH
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Aðstoðarkonur óskast í NPA-starf á kvöld- og helgarvaktir tímabundið starf til 31 október
NPA miðstöðin

Óska eftir hressum húmoristum í teymið mitt!
NPA miðstöðin

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Arnarhraun
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður óskast í afleysingu í Miðstöðina - úrræði fyrir fatlað fólk
Hafnarfjarðarbær

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Kópavogsbær

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Erluás
Hafnarfjarðarbær

Höfuð-Borgin - sértæk félagsmiðstöð
Höfuð-borgin sértæk félagsmiðstöð