Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sjúkraliði með framhaldsnám

Norðurmiðstöð leitar að öflugum sjúkraliða sem lokið hefur framhaldsmenntun til starfa í heimahjúkrun. Starfshlutfall og vinnutími er samkomulag.

Kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja takast á við fjölbreytt og áhugaverð verkefni sérhæfðra sjúkraliða í heimahjúkrun.

Jákvæðni og liðsheild einkennir starfsstaðinn og er lögð áhersla á þverfaglegt samstarf í samráði við þjónustuþega sem hafa fjölbreyttar hjúkrunarþarfir. Starfið er hluti af samþættri heimaþjónustu heimahjúkrunar, heimastuðnings og endurhæfingateymis. Starfað er eftir gæðastefnu velferðarsviðs og hugmyndafræði heimahjúkrunar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hjúkrun í heimahúsi, í samvinnu við teymisstjóra hjúkrunar og aðrar heilbrigðisstéttir
  • Sinna sérhæfðri hjúkrunarmeðferð og öðrum hjúkrunarviðfangsefnum sem við á
  • Taka virkan þátt í starfsemi teymis og teymisvinnu
  • Taka þátt í eftirfylgd og mati á hjúkrunaráætlunum í samvinnu við teymisstjóra hjúkrunar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt sjúkraliðaleyfi
  • Framhaldsmenntun á sviði hjúkrunar
  • Reynsla af teymisvinnu og vinna með hjúkrunaráætlun
  • Þekking á sjúkraskrárkerfinu SÖGU
  • Sjálfstæði og sveigjanleiki í vinnubrögðum
  • Góð samskipta- og skipulagshæfni
  • Íslenskukunnátta C1- skv. evrópska tungumálarammanum
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar

Ökuréttindi

Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsustyrkur
  • Menningarkort
  • Frítt í sundlaugar Reykjavíkurborgar
  • 36 stunda vinnuvika
Auglýsing birt20. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Efstaleiti 1, 103 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar