atNorth
atNorth hefur frá 2009 verið brautryðjandi í hönnun, uppbyggingu og rekstri hátæknigagnavera á Íslandi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku. Meðal viðskiptavina atNorth eru alþjóðleg fyrirtæki og stofnanir sem starfa í fjölmörgum greinum, svo sem við rannsóknir, í heilbrigðisgeiranum, í fjármálaiðnaði og veðurfræði, sem nýta þjónustu atNorth til þess að vinna gögn með hámarks afköstum á hagkvæman og umhverfisvænan hátt.
Með staðsetningu gagnavera atNorth á Norðurlöndunum getur fyrirtækið nýtt umhverfisaðstæður svo sem loftslag og nýtingu hita sem myndast í gagnaverunum til að ná fram betri orkunýtingu en þekkist annars staðar við rekstur gagnavera, ásamt því að knýja gagnaverin með endurnýjanlegri orku. Hringrásarhagkerfið sem byggir á grunni endurnýjanlegrar orku og hagkvæmrar orkunýtingar er haft að leiðarljósi við hönnun gagnavera atNorth.
Höfuðstöðvar atNorth eru í Reykjavík, en fyrirtækið rekur sjö gagnaver á Norðurlöndum. Á árinu 2024 verða tvö ný gagnver tekin í notkun í Finnlandi og Danmörku. Frekari upplýsingar um atNorth er að finna á heimasíðu fyrirtækisins atnorth.com og eins má fylgja atNorth á Linkedin og Facebook.
ÞJÓNUSTUSTJÓRI
atNorth stækkar á Akureyri og leitar að árangursmiðuðum þjónustustjóra fyrir gagnaverið sitt til að tryggja farsælar innleiðingar nýrra viðskiptavina og ánægjulega upplifun af þjónustu atNorth.
Þetta starf er ráðning til framtíðar og fullt stöðugildi. Starfið hentar öllum kynjum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Þú munt veita viðskiptavinum sem nýta gagnaver okkar á Akureyri þá aðstoð og þjónustu sem þau þurfa hverju sinni, innleiða nýja viðskiptavini og vera í beinum samskiptum við þá. Þetta eru þín helstu verkefni:
- Innleiðing nýrra viðskiptavina og aðstoð við núverandi viðskiptavini
- Skipulag og framkvæmd prófana og afhendinga
- Samhæfing reksturs og afhendingar
- Skjölun fyrir uppsetningu lausna og búnaðar
- Staðfesting uppsetningar og afhendinga
- Ýmis önnur verkefni í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
Þú þarft að hafa reynslu af því að veita fólki aðstoð, hafa áhuga á verkefnastýringu og ríka þjónustulund.
- Þekking á þjónustustjórnun
- Reynsla af uppbyggingu teyma og að leiða teymi
- Reynsla af verkefnastjórnun
- Samviskusemi, stundvísi og drifkraftur
- Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Rík þjónustulund, jákvæðni og samskiptahæfni
- Mjög góð enskukunnátta
- Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
- Hreint sakavottorð
Fríðindi í starfi
- Heilsumiðað hugarfar með markmið um jafnvægi starfs og einkalífs
- Íþróttastyrkur til rækta líkama og sál
- Skemmtinefnd sem þéttir hópinn
- Veitingaþjónusta send á vinnustaðinn
- Fjarskiptapakki og símastyrkur
- Alþjóðlegur vinnustaður með fjölmenningu
- Tækifæri til þess að ferðast og kynnast öðrum gagnaverum okkar á Norðurlöndum
Auglýsing birt5. febrúar 2025
Umsóknarfrestur17. febrúar 2025
Tungumálahæfni
Enska
Mjög góðNauðsyn
Íslenska
Mjög góðNauðsyn
Staðsetning
Rangárvellir 150122, 603 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHreint sakavottorðJákvæðniMannleg samskiptiMetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísiTeymisvinnaVandvirkniVerkefnastjórnunÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (7)