Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa
Barna- og fjölskyldustofa

Teymisstjóri meðferðarteymis

Barna- og fjölskyldustofa leitar að framsæknum teymisstjóra til að leið meðferðarteymi stofnunarinnar. Um er að ræða nýtt starf innan meðferðarsviðs Barna- og fjölskyldustofu og er starfsstöð teymisins í Reykjavík. Hlutvek teymisins er að hafa faglega umsjón með meðferð og greiningu skjólstæðinga á meðferðarheimilum Barna- og fjölskyldustofu og veita starfsfólki heimilanna stuðning og fræðslu. Hlutverk teymisins er einnig að veita ráðgjöf og taka á móti umsóknum á meðferðarheimilin frá barnaverndarþjónustum ásamt því að sinna faglegri þróun innan málaflokksins. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra meðferðarsviðs.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg umsjón og fagleg stjórnun meðferðarteymisins. 

  • Ábyrgð á þróun ráðgjafar, fræðslu og handleiðslu til starfsfólks meðferðarheimila. 

  • Ábyrgð á móttöku umsókna og ráðgjöf til barnaverndarþjónustunnar. 

  • Ábyrgð á þróun meðferðarstarfs innan meðferðarheimila í samráði við forstöðumenn og framkvæmdastjóra meðferðarsviðs. 

  • Ábyrgð á samskiptum meðferðarteymis út á við sem og samstarfi við barnaverndarþjónustu og aðrar stofnanir sem sinna málefnum barna.  

  • Þátttaka í stefnumótun og nýsköpun innan stofnunarinnar 

  • Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi á vegum stofnunarinnar. 

  • Fer með mannaforráð. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Starfsleyfi sem sálfræðingur. 

  • Reynsla af meðferðarstarfi með börnum með alvarlegan hegðunarvanda og fjölskyldum þeirra. 

  • Þekking og reynsla af stjórnun teyma er æskileg. 

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og geta og vilji til að hvetja aðra til árangurs. 

  • Skipulagshæfileikar og geta til að hafa yfirsýn og umsjón með verkefnum. 

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum. 

  • Góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku er nauðsynleg, önnur tungumálakunnátta er kostur. 

Fríðindi í starfi
  • Samgöngustyrkur
  • Líkamsræktarstyrkur
Auglýsing birt8. október 2024
Umsóknarfrestur18. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Borgartún 29, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar