Spennandi framtíðarstarf þroskaþjálfa
Austurmiðstöð auglýsir eftir metnaðarfullum þroskaþjálfa í 100% starf í vaktavinnu á íbúðakjarna fyrir fatlað fólk í Grafarholti. Markmið þjónustunnar er að veita íbúum aðstoð til sjálfstæðs og innihaldsríks lífs, innan sem utan heimilis. Unnið er eftir hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og þjónandi leiðsögn.
Í starfi þroskaþjálfans er lögð áhersla á einstaklingsmiðaða þjónustu í anda hugmyndafræðinnar um sjálfstætt líf og aðferðir þjónandi leiðsagnar. Markmiðið er að gera íbúum kleift að búa á eigin heimili, stunda vinnu og félagslíf, og lifa í samfélaginu án aðgreiningar. Þjónustan miðar að því að auka lífsgæði og sjálfstæði íbúa með því að efla færni þeirra, stuðla að jákvæðum samskiptum og jákvæðri sjálfsmynd.
Um er að ræða vaktavinnu(dag- kvöld- og helgarvaktir).
Kostur ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
- Sinna faglegu starfi í samstarfi og samráði við íbúa, forstöðumann og deildarstjóra.
- Veita samstarfsstarfsmönnum leiðsögn og tilsögn um framkvæmd þjónustu.
- Sinna einstaklingsmiðaðri þjónustu og aðstoða íbúa við allar daglegar athafnir.
- Þátttaka í gerð og eftirfylgd einstaklingsáætlana.
- Tekur virkan þátt í þróunar- og uppbyggingarvinnu.
- Samvinna við starfsfólk, aðstandendur og aðra þjónustuaðila íbúa.
- Stuðla að virkni, velferð og vellíðan þjónustunotenda.
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.
- Starfsleyfi sem þroskaþjálfi eða háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Þekking og reynsla af starfi með fötluðum einstaklingum og/eða öldruðum.
- Góð þekking á óhefðbundnum tjáskiptaleiðum kostur.
- Reynsla af stjórnun kostur.
- Reynsla og þekking af teymisvinnu æskileg.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Sveigjanleiki og hæfni í mannlegum samskiptum.
- Góð íslenskukunnátta C1 (samkvæmt samevrópskum tungumálaramma).
- Hreint sakavottorð samkvæmt reglum Reykjavíkurborgar.
- 36 stunda vinnuvika
- Heilsustyrkur
- Sundkort að sundlaugum Reykjavíkurborgar
- Menningarkort
- Samgöngustyrkur