Garðabær
Garðabær leggur áherslu á að veita íbúum bæjarins framúrskarandi þjónustu og sækist eftir að ráða til starfa metnaðarfulla og færa einstaklinga sem eru jákvæðir, faglegir og áreiðanlegir.
Starfsemi bæjarins býður upp á mörg skapandi, fjölbreytt og skemmtileg störf í lifandi umhverfi.
Velferðarsvið Garðabæjar óskar eftir að ráða starfsfólk
Velferðarsvið Garðabæjar leitar að jákvæðu, hressu og drífandi starfsfólki í 70-90% starfshlutfall í vaktavinnu og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir.
Um er að ræða starf með einstaklingi með Duchenne vöðvarýrnunarsjúkdóm, sem notar hjólastól sem hann stýrir sjálfur. Viðkomandi er með eigin bíl og því er mikilvægt að starfsfólk sé með ökuréttindi.
Við leggjum áherslu á jákvæð samskipti, húmor og framúrskarandi þjónustu. Í boði er skemmtilegt og fjölbreytt starf.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að styðja einstaklinginn til sjálfstæðs lífs með valdeflandi stuðningi og aðstoð
- Að sinna umönnun og vera vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan hans, aðstoða hann varðandi heilsufarslega þætti eftir þörfum hverju sinni
- Aðstoða með öll almenn heimilisstörf
- Vera félagslegur stuðningur
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, skipulagshæfni, stundvísi og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Reynsla og kunnátta í aðstoð við fatlað fólk er æskileg
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Bílpróf er skilyrði
- Aldurstakmark 20 ára
Fríðindi í starfi
Hér má sjá þau hlunnindi sem starfsmönnum Garðabæjar bjóðast.
Auglýsing birt3. október 2024
Umsóknarfrestur10. október 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)
AÐSTOÐARMAÐUR ÓSKAST
NPA notendastýrð persónuleg aðstoð
Ferðaþjónusta fatlaðra Akstur
Teitur
Stuðningsfulltrúi í fjölgreinadeild - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Frábær aðstoðarkona óskast á helgarvaktir í Hafnarfirði!
NPA miðstöðin
Deildarstjóri óskast í búsetukjarna í Mosfellsbæ
Búsetukjarninn Langahlíð
Stuðningsfulltrúi
Skólakot
Atvinna
Sveitarfélagið Ölfus
Starfsmaður á heimili fatlaðs fólks
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar
Spennandi framtíðarstarf þroskaþjálfa
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Umönnun Framtíðarstarf - Laugarás
Hrafnista
Stuðningsþjónusta á Seyðisfirði - hlutastarf/aukavinna
Fjölskyldusvið
Umönnun framtíðarstarf - Nesvellir
Hrafnista