

Tækniteiknari - Umhverfis- og skipulagssvið
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir tækniteiknara
Umhverfis- og skipulagssvið Hafnarfjarðarbæjar óska eftir að ráða tækniteiknarar í Framkvæmda- og rekstrardeild í 100% starf. Starfsmenn sviðsins eru um 50 og er starfsstöðin á Norðurhellu 2.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Almenn teiknivinna fyrir sviðið og deildir sveitarfélagsins
- Útbýr hæðarblöð, mæliblöð og lóðarblöð í samræmi við deiliskipulag
- Gerð og breytingar á aðal- og deiliskipulagi í samvinnu við skipulagsdeild
- Uppfærsla grunngagna fyrir kortagrunn
- Samantekt gagna fyrir merkjalýsingar
- Vinnur við sérhæfð teikniverkefni, vinna við afgreiðslu, frágang og geymslu gagna.
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun á sviði tækniteiknunar
- Starfsreynsla sem nýtist í stafi
- Reynsla af notkun teikniforrita svo sem Acad skilyrði
- Reynsla af notkun GIS kerfa kostur.
- Reynsla á lóðablaðagerð, kortagerð, gerð uppdrátta, landupplýsingavinnslu og á skipulagsmálum æskileg
- Almenn tölvuþekking, s.s. Office forrit og teikniforrit
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum og þjónustulund
Laun eru samkvæmt kjarasamning Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.
Umsóknarfrestur er til og með 5. júní n.k. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Helga Stefánsdóttir forstöðumaður framkvæmda- og rekstrardeildar í síma 585-5600 eða í gegnum netfangið [email protected]
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.





































