

Aðstoðarskólastjóri í Skarðshlíðarskóla
Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum aðstoðarskólastjóra
Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja. Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.
Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíkan hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.
Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Í vetur eru um 490 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóla í samtengdu skólahúsnæði.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Stýrir daglegu skólastarfi í samvinnu við stjórnendateymi skólans og starfsmenn
- Er staðgengill skólastjóra
- Veitir faglega forystu og mótar framtíðarsýn í samræmi við skólastefnu sveitarfélagsins, aðalnámskrá grunnskóla og lög um grunnskóla
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Samskipti við nemendur, foreldra og aðra innan skólasamfélagsins
- Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
- Vinnur samkvæmt stefnu skólans í SMT skólafærni
- Vinnur náið með starfsfólki að því að viðhalda og skapa frjótt námsumhverfi með farsæld barna að leiðarljósi
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf sem kennari (Leyfisbréf fylgi umsókn)
- Viðbótarmenntun/framhaldsmenntun í stjórnun æskileg
- Farsæl kennslu- og/eða stjórnunarreynsla
- Faglegur metnaður og skýr framtíðarsýn
- Þekking og/eða reynsla á SMT skólafærni æskileg
- Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, góðir skipulagshæfileikar og lausnarmiðuð nálgun
- Góð íslenskukunnátta, góð færni í að tjá sig í ræðu og riti á íslensku og góð almenn tölvukunnátta
- Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Magnúsdóttir skólastjóri í síma 6645871 eða með tölvupósti [email protected]
Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025. Umsóknarfrestur er til og með 29. maí 2025.
Greinagóð ferilskrá og kynningarbréf fylgi umsókn.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og SÍ.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.












































