Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri á mið- og unglingastigi - Skarðshlíðarskóli

Skarðshlíðarskóli óskar eftir drífandi og kraftmiklum deildarstjóra til að taka þátt í metnaðarfullu skólastarfi í afleysingum fram að áramótum. Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.

Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.

Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.

Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Nú eru um 490 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.

Helstu verkefni:

  • Annast deildarstjórn á mið- og unglingastigi
  • Hefur yfirumsjón með verkefnum innan kennslustigs
  • Leiða námsmatsvinnu
  • Tekur á hegðunarvanda nemenda á kennslustigi
  • Taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og mótun á skólastarfi
  • Stuðla að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og annað fagfólk
  • Vinna samkvæmt stefnu skólans
  • Vinna að því að skapa gott andrúmsloft í skólanum og tryggja öryggi og velferð nemenda og starfsfólks
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni

Hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og /eða uppeldis- eða kennslufræði er kostur
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina á mið- og unglingastigi og kennslureynsla
  • Mjög góð þekking og reynsla af fjölbreyttu námsmati
  • Haldgóð þekking á MENTOR, sérstaklega námsmatshlutanum
  • Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum, námsaðlögun og samþættingu
  • Þekking og reynsla af SMT er kostur
  • Leiðtoga- og skipulagshæfni
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góða íslenskukunnátta

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð

Nánari upplýsingar veitir Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða í tölvupósti [email protected]

Umsóknarfrestur er til og með 19. maí 2025.

Greinagóð ferilsskrá fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.

Auglýsing birt5. maí 2025
Umsóknarfrestur19. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar