Hofsstaðaskóli Garðabæ
Hofsstaðaskóli Garðabæ
Hofsstaðaskóli Garðabæ

Deildarstjóri í Hofsstaðaskóla

Hofsstaðaskóli í Garðabæ auglýsir eftir framsæknum og metnaðarfullum deildarstjóra. Deildarstjóri er faglegur leiðtogi og hluti af stjórnendateymi skólans. Í Hofsstaðaskóla eru 450 nemendur í 1. - 7. bekk og þar starfa um 90 starfsmenn með það að markmiði að hlúa að nemendum bæði námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Í skólanum fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda Menntastefnu Garðabæjar. Læsi og leiðsagnarnám skipa stóran sess og þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug. Nánari upplýsingar um skólann má finna á vefsíðunni www.hofsstadaskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð

•    Vinnur með og undir stjórn skólastjóra og aðstoðarskólastjóra
•    Skipuleggur og stýrir stoðþjónustu skólans 
•    Er fagfólki skólans ráðgjafi varðandi námsaðstæður, stuðning og skipulag kennslu 
•    Fylgir eftir gerð einstaklingsnámsskráa og er ráðgefandi aðili við gerð þeirra
•    Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
•    Skipuleggur og verkstýrir stuðningsfulltrúum og vinnur með sálfræðingum talmeinafræðingum og öðrum sérfræðingum sem koma að málefnum nemenda
•    Vinnur að þróun skólastarfs
•    Sinnir þeim verkefnum sem skólastjóri felur viðkomandi

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf í grunnskólakennarafræðum
  • Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum
  • Reynsla af sérkennslu
  • Stjórnunarreynsla er æskileg
  • Mikill áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð hæfni í ræðu og riti á íslensku
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. Evrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi

Starfsmenn sveitarfélagsins fá hreyfistyrk, frítt í sund, á bókasafn Garðabæjar og Hönnunarsafn Íslands. Þá hefur starfsfólk í skólum Garðabæjar möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi skóla bæjarins.

Auglýsing birt16. maí 2025
Umsóknarfrestur2. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Skólabraut
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar