

Tónfræðakennari - Tónlistarskóli Hafnarfjarðar
Tónlistarskóli Hafnarfjarðar auglýsir eftir tónfræðakennara, um 50% starf er að ræða. Ráðið er í stöðuna frá og með 1. ágúst 2025.
Í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar er lögð áhersla á skapandi og gefandi námsumhverfi þar sem allir aðilar leitast við að gera námið í senn áhugavert og skemmtilegt. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda og fjölbreytta kennsluhætti.
Í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar eru um 600 nemendur og 50 kennarar.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Tónfræðakennsla samkvæmt aðalnámskrá tónlistarskólanna
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni og samkvæmt starfslýsingu
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Tónlistarmenntun
- Reynslu að starfa með nemendum
- Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvætt viðmót og góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
- Stundvísi og samviskusemi
- Góð íslenskukunnátta
Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Stephensen, skólastjóri, í síma 664-5882 og í gegnum tölvupóst [email protected] og Stefán Ómar Jakobsson, aðstoðarskólastjóri, í síma 664-5884 og í gegnum tölvupóst [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 19. maí 2025
Greinargóð ferilsskrá fylgi umsókn.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og FT/FÍH.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.







































