

Skóla- og frístundaliði - Engidalsskóli /frístundaheimilið Álfakot
Engidalsskóli óskar eftir að ráða skóla- og frístundaliða í hlutastarf á frístundaheimilið Álfakot í 40-50% starf eða eftir samkomulagi
Möguleiki er einnig á að taka vaktir í félagsmiðstöð barna 10-12 ára.
Í Engidalsskóla er starfrækt frístundaheimili fyrir 6 - 9 ára börn og félagsmiðstöð fyrir 10 - 12 ára börn. Markmið frístundastarfs er að gefa börnum og ungmennum tækifæri til að stunda skapandi og þroskandi félagsstarf í heilbrigðu umhverfi á jafnréttisgrundvelli.
Starfið felur í sér stuðning og stýra hópum í frístundastarfi skólans. Vinnutími er á bilinu 12:30-16:30.
Engidalsskóli var stofnaður árið 1978. Skólinn er lítill og notalegur, hann sækja nemendur í 1.-7. bekk, nemendur eru um 200. Leiðarljós skólans eru Ábyrgð - Virðing – Vellíðan
Nánari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni www.engidalsskoli.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Starfa á frístundaheimili fyrir yngri nemendur
- Stýra hópi í frístundastarfi
- Starfa með fjölbreyttum nemendahópi
- Aðstoðar í matsal og við undirbúning matmálstíma
- Fylgjast með og aðstoða börn í leik og starfi
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu skóla- og frístundaliða og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
- Áhugi á faglegu starfi með börnum
- Góð íslenskukunnátta
- Samstarfs- og samskiptahæfni
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Hæfni til að aðlagast breyttum aðstæðum
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar veitir Margrét Halldórsdóttir, skólastjóri í netfanginu, [email protected] eða síma 5554433 og Arnheidur Gudmundsdóttir deildarstjóri frístundastarfs í netfangið [email protected] eða í síma 555-4434.
Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitafélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðarbæjar.
Umsóknarfrestur er til og með 22. maí 2025.
Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.










































