Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Kennari - Leikskólinn Álfaberg

Leikskólinn Álfaberg óskar að ráða kennara til starfa í 100% starfshlutfall.

Leikskólinn Álfaberg er 5 deilda leikskóli sem er staðsettur á Breiðvangi 42 í Norðubæ Hafnarfjarðar. Megin áhersluþættir leikskólans eru læsi og félagsfærni. Jafnframt er lögð áhersla á snemmtæka íhlutun. Í leikskólanum er unnið samkvæmt SMT skólafærni og eru gildi leikskólans virðing og umhyggja.

Áhersla er lögð á að mynda jákvætt andrúmsloft, unnið er markvisst með starfsánægju og að starfsumhverfið sé skapandi og lærdómsríkt fyrir börn og fullorðna. Á Álfabergi starfar skemmtilegur og metnaðarfullur hópur starfsmanna sem eru lífsglaðir, jákvæðir og lausnamiðaðir. Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum sem hafa metnað og áhuga fyrir starfinu.

Leikskólar Hafnarfjarðar hafa innleitt betri vinnutíma sem miðast við 36 stunda vinnuviku fyrir allt starfsfólk. Starfsfólk í Félagi leikskólakennara og Þroskaþjálfafélaginu hefur kosið fyrirkomulag sem felur í sér að starfsár þeirra er sambærilegt starfsári grunnskólakennara. Þessir starfsmenn taka því út vinnutímastyttingu í kringum jól og áramót, þegar vetrarfrí er í grunnskólum, í dymbilviku og með lengri fjarveru á sumrin.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
  • Að taka þátt í skipulagningu faglegs starfs
  • Að taka þátt í foreldrasamstarfi í samráði við deildarstjóra
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsleyfi sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af uppeldis og kennslustörfum æskileg
  • Góð færni í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Þekking á starfsaðferðum SMT er kostur

Fríðindi í starfi:

  • Heilsuræktarstyrkur
  • 75% afsláttur af leikskólagjöldum
  • Forgangur á leikskóla
  • Bókasafnskort
  • Sundkort

Fáist ekki starfsmenn með leyfisbréf til kennslu, kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling eða einstakling með reynslu af starfi með börnum, sbr. lög nr. 95/2019.

Nánari upplýsingar um starfið veita Lilja Kolbrún Steinþórsdóttir leikskólastjóri, [email protected] og Linda Björk Halldórsdóttir aðstoðarleikskólastjóri, [email protected] eða í síma 5553021/6645864.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara.

Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð

Umsóknarfrestur er til og með 28. maí 2025.

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt21. maí 2025
Umsóknarfrestur28. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Breiðvangur 42, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (25)
Hafnarfjarðarbær
Tónmenntakennari - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar - Skarðshlíðarleikskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skrifstofustjóri - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Leikskólastjóri - Hlíðarberg
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Aðstoðarskólastjóri í Skarðshlíðarskóla
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á miðstigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri – Heilsuleikskólinn Hamravellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmenn í tímavinnu – Lækur
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar – Heilsuleikskólinn Hamravellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skrifstofustjóri - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Heimilisfræðikennari - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennarar á yngsta stig - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á yngsta- og miðstigi - Engidalsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Vinnuskóli - Biðlisti fyrir 18 ára og eldri
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri tómstundamiðstöðvar - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Flokkstjórar og aðstoðarflokkstjórar Vinnuskóla – sumarstörf
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérkennari á yngsta stig - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Myndmenntakennari– Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði - Engidalsskóli /frístundaheimilið Álfakot
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Hlíðarberg
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður sértækrar heimaþjónustu - Fjölskyldu- og barnamálasvið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Íþróttakennari - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérkennari - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær