
Sérfræðingur í regluverki mannvirkjagerðar
Vilt þú starfa á nútímalegum vinnustað sem leggur áherslu á öfluga miðlun upplýsinga, árangursríkt samstarf við hagaðila og nýsköpun á byggingarmarkaði?
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun leitar að öflugu starfsfólki í teymi starfsumhverfis mannvirkjagerðar til að stuðla að betri innleiðingu byggingarregluverks og veita hagaðilum mannvirkjageirans stuðning til að þeir nái árangri við að uppfylla grunnkröfur um mannvirki. Þetta er gert með því að stuðla markvisst að aukinni þekkingu og rannsóknum ásamt því að vinna að fræðslu og að viðhalda virku samtali við hagaðila. Teymið vinnur einnig að samræmingu byggingareftirlits og minni kolefnislosun á íslenskum byggingamarkaði.
Fjölbreytt og krefjandi verkefni eru framundan við þróun á starfsumhverfi mannvirkjagerðar í takt við hlutverk og framtíðarsýn stofnunarinnar.
HMS óskar eftir að ráða sérfræðing í regluverki mannvirkjagerðar.
- Umsjón og þátttaka í vinnu við reglugerðarbreytingar á sviði mannvirkjagerðar
- Gerð og miðlun fræðsluefnis um mannvirkjagerð
- Umsjón með gerð leiðbeininga við byggingarreglugerð og samskipti við fagaðila
- Byggja upp og viðhalda góðum samskiptum við byggingarfulltrúa sveitarfélaga og fagaðila á sviði mannvirkjagerðar
- Móttaka, úrvinnsla og svörun fyrirspurna
- Þátttaka í þróun mannvirkjaskrár
- Háskólamenntun á byggingasviði s.s. byggingafræði, tæknifræði, verkfræði, lögfræði eða arkitektúr er skilyrði
- Reynsla af byggingaframkvæmdum og hönnun er kostur
- Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
- Löggilding hönnuða er kostur
- Góð greiningar- og skipulagshæfni og reynsla af umsjón verkefna
- Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður til að ná árangri
- Góð samskipta- og samstarfshæfni, jákvætt og lausnamiðað viðhorf
- Gott vald á íslensku og ensku


















