Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Náms- og starfsráðgjafi - Skarðshlíðarskóli

Við auglýsum eftir drífandi og kraftmiklum náms- og starfsráðgjafa í 50 til 80% starfshlutfall

Gildi skólans eru samvinna, vinátta og þrautseigja.

Í Skarðshlíðarskóla eru áhugasamir og skemmtilegir nemendur, metnaðarfullt starfsfólk og öflugur foreldrahópur. Við leggjum áherslu á góðan starfsanda, teymiskennslu, fjölbreytta kennsluhætti, SMT skólafærni og að allir nemendur nái góðum árangri í leik og starfi. Mílan er órjúfanlegur hluti af skólastarfinu en í því felst að nemendur og starfsfólk fer út daglega og gengur, skokkar eða hleypur í 15 mínútur.

Innleiðing á UDL (Universal Design for Learning) hófst haustið 2020. UDL veitir nemendum möguleika á að læra á ólíka vegu og að sýna kunnáttu sína á ólíka hátt. Nemendur eru virkir og hafa áhrif á eigið nám.

Skarðshlíðarskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur í 1. til 10.bekk. Í vetur eru um 490 nemendur í skólanum. Skólahúsnæðið er glæsilegt og er skólinn vel tækjum búinn, með íþróttahús, útibú frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar og fjögurra deilda leikskóli í samtengdu skólahúsnæði.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Að standa vörð um nám og velferð nemenda
  • Að taka þátt í forvarnarverkefnum skólans
  • Er í eineltisteymi skólans
  • Að vera trúnaðarmaður og talsmaður nemenda
  • Að veita nemendum, foreldrum og starfsfólki ráðgjöf varðandi nám, námstækni, námsvenjur, líðan, kvíða og samskiptavanda
  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Starfsréttindi sem náms- og starfsráðgjafi
  • Geta til að vinna sjálfstætt
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Mjög góða íslenskukunnátta

Gerð er krafa um hreint sakavottorð við ráðningu.

Nánari upplýsingar um starfið veita Ingibjörg Magnúsdóttir, skólastjóri, í síma 6645871 eða með tölvupósti [email protected]

Ráðið er í stöðuna frá 1. ágúst 2025. Umsóknarfrestur er til og með 9. júní 2025.

Greinargóð ferilskrá og leyfisbréf fylgi umsókn.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt27. maí 2025
Umsóknarfrestur9. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Hádegisskarð 1, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar