
Borgarbyggð
Borgarbyggð er fallegt, friðsælt og fjölskylduvænt sveitarfélag á Vesturlandi, í nálægð við allt sem skiptir máli.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingum sem sýna metnað og frumkvæði í starfi. Borgarbyggð hefur einsett sér að leggja aukna áherslu á notendamiðaða þjónustuhönnun, tækniframþróun og þjónustu við íbúa og viðskiptavini.
Í þeirri vegferð sem er framundan ætlum við að efla þjónustu sveitarfélagsins og vera tilbúin að mæta áskorunum framtíðarinnar. Áhersla verður lögð á þverfaglegt samstarf í verkefnamiðuðu umhverfi og frekari þróun innra starfs sem leiði í senn til framúrskarandi þjónustu og öflugs vinnuumhverfis.
Gildi Borgarbyggðar í starfsmannamálum eru: virðing, áreiðanleiki og metnaður sem höfð eru að leiðarsljósi í stefnum og markmiðum í starfi.

Verkefnastjóri í skólaþjónustu
Borgarbyggð óskar eftir verkefnastjóra í skólaþjónustu. Um tímabundna stöðu til eins árs er að ræða með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Verkefnastjóri í skólaþjónustu sinnir ráðgjöf til skóla sem felur meðal annars í sér, ráðgjöf í sérkennslu, ráðgjöf til kennara og stjórnenda, ráðgjöf til foreldra og einnig stuðningur við nýbreytni- og þróunarstarf í fræðslumálum hjá sveitarfélaginu. Áhersla er lögð á að verkefnastjórin hafi viðtæka þekkingu á málefnum leikskóla.
Hluti af starfinu felur einnig í sér málstjórn á 2. stigi í farsæld. Málstjóri sér um að börn og foreldrar hafi greiðan aðgang að samþættri þjónustu.
Ráðið er í stöðuna frá og með 1. ágúst 2025. Kostur er ef starfsmaður geti hafið störf fyrr.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ráðgjöf til stoðþjónustuaðila í leik- og grunnskólum
- Ráðgjöf til skólastjórnenda í leik- og grunnskólum
- Málstjórn á 2. stigi í farsæld
- Umsjón og ráðgjöf með skólaþjónustu og skipulag á fyrirkomulagi verktaka í skólaþjónustu
- Þátttaka í nemendavernd og lausnateymi leik- og grunnskóla
- Vinnur með skólastefnu Borgarbyggðar
- Vinnur í teymi með starfsmönnum skólaþjónustu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennsluréttindi
- Víðtæk reynsla af stoðþjónustu í leikskólum
- Færni, þekking og reynsla af inngildandi starfsháttum í skólum
- Hæfni og reynsla til að veita faglega forystu
- Reynsla af þróunarstarfi og stefnumótun í skólamálum
- Mikil áhersla á færni og sveigjanleika í samskiptum
- Góð íslensku- og tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
- Sveigjanlegur vinnutími
- Heilsustyrkur til starfsmanna
- Handleiðsla
Auglýsing birt28. maí 2025
Umsóknarfrestur11. júní 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Digranesgata 2, 310 Borgarnes
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (7)

Starfsmaður í áhaldahús
Borgarbyggð

Grunnskólakennari - Grunnskólinn í Borgarnesi
Borgarbyggð

Leikskólakennari á Hnoðraból
Borgarbyggð

Sumarstörf við sundlaugar Borgarbyggðar
Borgarbyggð

Laus staða félagsráðgjafa hjá Borgarbyggð
Borgarbyggð

Starfsfólk í heimaþjónustu
Borgarbyggð

Leiðbeinandi í sumarfjöri
Borgarbyggð
Sambærileg störf (12)

Deildarstjóri - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri á Lækjarbrekku – Hólmavík
Sveitarfélagið Strandabyggð

Leikskólakennari óskast í frábæran skóla
Vinagarður leikskóli KFUM og KFUK

Leikskólinn Mánahvoll auglýsir eftir deildastjóra
Ungbarnaleikskólinn Mánahvoll

Leikskólinn Mánahvoll auglýsir eftir leikskólakennara
Ungbarnaleikskólinn Mánahvoll

Leikskólakennari í Kópahvol
Kópahvoll

Deildarstjóri óskast í Kópahvol
Kópahvoll

Deildarstjóri - Leikskólinn Víðivellir
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari á yngsta stigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri – Heilsuleikskólinn Hamravellir
Hafnarfjarðarbær

Umsjónarkennari á miðstigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær

Kvíslarskóli - sérkennari
Kvíslarskóli