

Sumarstörf 2022 - Viltu vera á skrá? Hjúkrunarnemi sem lokið hefur 3. ári - Aðgerðasvið
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Hér geta nemar sem lokið hafa 3. ári í hjúkrunarfræði skráð almenna starfsumsókn fyrir aðgerðasvið sumarið 2022.
Á aðgerðasviði eru fimm þjónustukjarnar:
Skurðlækningaþjónusta
Skurðstofur og gjörgæsla
Krabbameinsþjónusta
Hjarta- og æðaþjónusta
Kvenna- og barnaþjónusta
Vinsamlega skráið óskir um þjónustukjarna/ deildir í reitinn "Annað" neðst á umsóknareyðublaðinu. Mikilvægt er að umsókn sé vel fyllt út.





























































