Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsráðgjafi óskast í SkaHm þekkingarmiðstöð

SkaHm er heildstæð þjónusta fyrir börn og ungmenni með fjölþættar stuðningsþarfir og fjölskyldur þeirra.

SkaHm óskar eftir metnaðarfullum fagaðila til starfa með börnum og ungmennum.
Þjónusta SkaHm skiptist í tvö svið, Dvalar- og Ráðgjafarsvið.
Undir Dvalarsviði er Styrkur og Dvöl.
Styrkur – Þar sem markmiðið eru að styðja barnið við að efla félagsfærni, sjálfstæði og virkni í daglegum athöfnum. Stuðningurinn fer annars vegar fram í einstaklingsstarfi og hins vegar í hópastarfi.
Dvöl – Er sólarhringsþjónusta þar sem markmiðið er að veita börnum og foreldrum tímabundna hvíld með það að leiðarljósi að draga úr streituvaldandi aðstæðum sem hafa skapast inn á heimili. Auk þess felst starfsemin í því að styðja barnið í athöfnum daglegs lífs.
Undir Ráðgjafasviði er Heimastuðningur og ráðgjöf.
Heimastuðningur og ráðgjöf - Leggur áherslu á að styðja barn í tilfinningavanda og valdefla/styðja foreldra í uppeldishlutverki sínu. Þjónustan er veitt í nærumhverfi fjölskyldunnar.
Laus staða er á Dvalarsviði.
Allt starf SkaHm byggir á teymisvinnu þar sem unnið er að farsæld barnsins.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni og ábyrgð

  •  Ígrunduð þjónusta og stuðningur sem veittur er til að stuðla að farsæld barna. 
  • Vera þátttakandi í samþættingu þjónustu við barn og fjölskyldu þess. 
  • Mæta þörfum barns á heildstæðan og einstaklingsbundinn hátt til að auka félagsfærni, virkni og tilfinningaþroska. 
  • Stefnumótunarvinna með teymisstjóra og öðru starfsfólki. 
  • Samstarf við þjónustumiðstöðvar, málstjóra farsældar, Barnavernd Reykjavíkur og aðra þjónustuaðila sem koma að málefnum barna með fjölþættar stuðningsþarfir.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis- eða menntavísinda. 
  • Þekking og reynsla af starfi með börnum og ungmennum. 
  • Jákvætt viðmót og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum. 
  • Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni. 
  • Íslenskukunnátta B1 eða hærra (í samræmi við samevrópskan tungumálaramma). 
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Auglýsing birt6. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Vesturbrún 17, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Reyklaus
Starfsgreinar
Starfsmerkingar