

Sjúkraliði/sjúkraliðanemi/hjúkrunarnemi sumarafleysing
Hefurðu áhuga á sumarstarfi þar sem þú færð fjölbreytta reynslu og tilheyrir þéttum starfsmannahópi? Heimahjúkrun á Sléttuvegi óskar eftir sjúkraliðum og sjúkraliða- eða hjúkrunarnemum í afleysingu í sumar. Um er að ræða vaktavinnu og getur starfshlutfall verið samkvæmt samkomulagi.
Hefurðu áhuga á gefandi starfi í sumar og tilheyra vinnustað þar sem ríkir góður andi ?
Heimaþjónusta Sléttuvegi auglýsir eftir sjúkraliðum og sjúkraliða- eða hjúkrunarnemum í sumarafleysingu við samþætta þjónustu heimahjúkrunar og heimastuðnings sumarið 2026.
Um er að ræða líflegan vinnustað þar sem veitt er staðbundin þjónusta á Sléttuvegi. Starfið býður upp á fjölbreyttar áskoranir og miðar að því að veita hjúkrun til einstaklinga í sjálfstæðri búsetu.
Á Sléttuvegi starfar þéttur og samheldinn starfsmannahópur og tökum við vel á móti nýju starfsfólki.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og stéttafélagi viðkomandi.
- Starfað er eftir Velferðarstefnu Reykjavíkurborgar og hugmyndafræði heimahjúkrunar.
- Unnið er eftir samþættri heimaþjónustu heimahjúkrunar, heimastuðnings í þverfaglegu samstarfi með það að markmiði að veita örugga og góða þjónustu við fólk í heimahúsum.
- Við leggjum áherslu á samfellda, einstaklingsmiðaða og sveigjanlega þjónustu sem stuðlar að auknu sjálfstæði og virkri samfélagsþátttöku.
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi/ sjúkraliðanemi eða hjúkrunarnemi (Staðfesting á námi)
- Viðkomandi þarf að hafa náð a.m.k. 18 ára aldri.
- Reynsla af teymisvinnu er kostur.
- Þekking á Sögu sjúkrarskrárkerfi er kostur.
- Sjálfstæð vinnubrögð.
- Faglegur metnaður og frumkvæði.
- Íslenskukunnátta (B1 skv. evrópska tungumálarammanum)
- Hreint sakavottorð skv. lögum og reglum Reykjavíkurborgar.
Íslenska




















