

Hefur þú áhuga á geðheilbrigðismálum? Spennandi starf á íbúðakjarna fyrir geðfatlaða
Langar þig að koma og starfa með okkur á velferðarsviði Reykjavíkurborgar sem stuðningsfulltrúi? Nú er einstakt tækifæri til þess að koma og kynnast starfsemi búsetuúrræða á vegum borgarinnar sem heldur utan um þjónustu við fólk með geðrænar áskoranir á heimilum þeirra. Komdu til liðs við okkar frábæra teymi
Við á íbúðarkjarnanum við Hallgerðargötu óskum eftir stuðningsfulltrúa í 80 - 100% starf. Um er að ræða tímabundið starf þar sem unnið er á morgun og kvöldvöktum sem og eina helgi í mánuði. Unnið er samkvæmt hugmyndafræði um sjálfstætt líf þar sem veitt er einstaklingsmiðuð þjónusta. Megin hlutverk íbúðarkjarnans er að styðja, valdefla og veita íbúum aðstoð til að eiga sjálfstætt og innihaldsríkt líf, innan sem utan heimilis með því að auka samfélagsþátttöku líkt og með atvinnu, njóta menningar og félagslífs. Lögð er áhersla á gott vinnuumhverfi, virðingu, samvinnu, heilsueflingu og sveigjanleika í starfi.
- Er vakandi yfir andlegri og líkamlegri líðan þjónustunotenda.
- Hvetur og styður íbúa til sjálfsstæðis og félagslegrar virkni með valdeflingu að leiðarljósi.
- Leiðbeinir og aðstoðar íbúa við heimilishald, læknisheimsóknir og fleira.
- Er leiðandi í starfsmannahópnum þegar að kemur að því að vinna eftir verklagi og hugmyndafræði starfsstaðarins.
- Tekur þátt í þróun úrræðisins.
- Áhugi og þekking á geðheilbrigðismálum.
- Reynsla af starfi með einstaklingum með geðfötlun kostur.
- Reynsla af umönnun kostur.
- Rík þjónustulund, jákvæðni, sjálfstæði og sveigjanleiki í starfi.
- Íslenskukunnátta B1-2 (samkvæmt samevrópskum matsramma um tungumálaviðmið)
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
- Stytting vinnuvikunnar.
- Heilsu – og samgöngustyrkur.
- Matur innifalinn á vöktum.
- Sund- og menningarkort.
- Starf á vegum Reykjavíkurborgar þar sem möguleikarnir eru margir.
Íslenska


















