
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin aðstoðar fatlað fólk og aðstandendur við það utanumhald og þá umsýslu sem fylgir því að hafa notendastýrða persónulega aðstoð. NPA miðstöðin veitir m.a. ráðgjöf, heldur fræðslunámskeið, greiðir aðstoðarfólki laun og sér um launatengd mál.
Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) er þjónustuform sem byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og gerir fötluðu fólki kleift að ráða hvar það býr og með hverjum það býr. Fatlað fólk stýrir því hvernig aðstoðin er skipulögð, hvenær hún fer fram, hvar hún fer fram og hver veitir hana.
Persónulegt aðstoðarfólk aðstoðar NPA notendur við sitt daglega líf, svo það hafi sömu möguleika og ófatlað fólk.

Listrænn húmoristi óskar eftir aðstoðarkonu
Ég er kona á besta aldri, bý í Kópavogi og er að leita að aðstoðarkonu til starfa í NPA þjónustu.
Ég hef gaman af lífinu og er úti um allt að gera alls konar hluti eins og að fara í sund og á menningarviðburði. Ég er í leiklist, sinni fjölbreyttum góðgerðarstörfum og sjálfboðaliðastörfum svo eitthvað sé nefnt. Ég er hreyfihömluð og nota hjólastól. Ég er að leita að aðstoðarkonu sem getur aðstoðað mig eftir þörfum í mínu daglega lífi.
Ég óska eftir aðstoðarkonu í hlutastarf (40-50%) og eru vaktirnar frá kl 12-20 í nokkra daga í viku og aðra hverja helgi.
Mikilvægt er að geta hafið störf sem fyrst og geta unnið yfir sumarið.
Ef þú hefur gaman af lífinu, getur tekið leiðsögn og átt auðvelt með mannleg samskipti þá er ég að leita að þér.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoð við heimilisstörf
- Aðstoð við útisvæði við heimilið
- Aðstoð við umhirðu farartækis
- Vera til taks í sundferðum, bæjarferðum og við að sinna áhugamálum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kvenkyns
- 25 ára eða eldri
- Tóbakslaus
- Læs og talandi á íslensku
- Kattarvinur, það er köttur á heimilinu
- Sveigjanleg, áreiðanleg og stundvís
- Bílpróf
- Getur sinnt helstu heimilisstörfum
Auglýsing birt2. febrúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
Hreint sakavottorðLíkamlegt hreystiMannleg samskiptiÖkuréttindiSamviskusemiStundvísiSveigjanleikiTóbakslaus
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)

Hláturmild listaspíra óskar eftir aðstoð
NPA miðstöðin

Aðstoðarverkstjórnandi óskast! / Work leader assistant wanted!
NPA miðstöðin

Looking for a person with horse experience!
NPA miðstöðin

Konur sem kunna að prjóna eða hekla óskast á kvöldvaktir
NPA miðstöðin

Óska eftir konum ì 50% - 100% vaktavinnu
NPA miðstöðin
Sambærileg störf (12)

Teymisstjóri óskast í nýjan íbúðakjarna
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar

Hefur þú áhuga á geðheilbrigðismálum? Spennandi starf á íbúðakjarna fyrir geðfatlaða
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Gleðilegt ár! Hressar aðstoðarkonur óskast á þriðjudögum og um helgar sem fyrst
Anna Kristín Jensdóttir

PA óskast í fullt starf/PA wanted for full-time position
Aðstoð óskast

Ás hjúkrunarheimili - laus störf við umönnun í sumar
Ás dvalar og hjúkrunarheimili

Grund og Mörk - laus störf við umönnun í sumar
Grundarheimilin

Hjúkrunar og læknanemar óskast í sumar
Grundarheimilin

Sjúkraliði óskast
Læknastofur Reykjavíkur

Skemmtilegt starf á Íbúðakjarna í Breiðholti
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstarf í heimahjúkrun- tækifæri fyrir sjúkraliðanema
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Fjölbreytt og skemmtileg störf aðstoðarmanna og aðstoðarverkstjórnanda í Reykjanesbæ.
NPA Setur Suðurlands ehf.

Sumarstarf á heimili fyrir fólk með fatlanir
Sumarstörf - Kópavogsbær