
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin aðstoðar fatlað fólk og aðstandendur við það utanumhald og þá umsýslu sem fylgir því að hafa notendastýrða persónulega aðstoð. NPA miðstöðin veitir m.a. ráðgjöf, heldur fræðslunámskeið, greiðir aðstoðarfólki laun og sér um launatengd mál.
Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) er þjónustuform sem byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og gerir fötluðu fólki kleift að ráða hvar það býr og með hverjum það býr. Fatlað fólk stýrir því hvernig aðstoðin er skipulögð, hvenær hún fer fram, hvar hún fer fram og hver veitir hana.
Persónulegt aðstoðarfólk aðstoðar NPA notendur við sitt daglega líf, svo það hafi sömu möguleika og ófatlað fólk.

Konur sem kunna að prjóna eða hekla óskast á kvöldvaktir
Konur sem kunna að prjóna eða hekla óskast á kvöldvaktir
37 ára kona í Vesturbæ Reykjavíkur óskar eftir aðstoðarkonum í hlutastarf á kvöldvaktir
Æskilegt er að viðkomandi sé 40 ára eða eldri. Eldri konur sérstaklega velkomnar.
Konan er á einhverfurófi og felst starfið í aðstoða við daglegar athafnir og veita henni félagsskap.
Helstu áhugamál hennar eru prjónaskapur, ýmis önnur handavinna og söngur. Gott er að aðstoðarkonan hafi einnig áhuga á handavinnu.
Athugið að á heimilinu er lítill hundur.
Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og eru laun samkvæmt sérkjarasamningum NPA miðstöðvarinnar við Eflingu og Starfsgreinasambandið.
Vaktir sem vantar á eru:
- Öll mánudagskvöld frá kl: 17-23
- Öll miðvikudskvöld frá kl: 17-23
- 4 hver helgi föstudaga og laugardaga frá kl:17-23, og sunnudaga frá kl: 20:30-23:30
- 4 hver helgi laugardag og sunnudag frá kl: 11-16
Hæfniskröfur:
- Þolinmæði.
- Frumkvæði.
- Góð samskiptahæfni.
- Að vera hvetjandi og skapandi.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur en ekki skilyrði.
- Íslenskukunnátta er skilyrði.
- Bílpróf og aðgengi að bíl er skilyrði.
Starfið hentar mjög vel með skóla eða annarri vinnu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt5. janúar 2026
Umsóknarfrestur9. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
107 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Mannleg samskiptiÖkuréttindiÞolinmæði
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (8)

Hláturmild listaspíra óskar eftir aðstoð
NPA miðstöðin

Aðstoðarverkstjórnandi óskast! / Work leader assistant wanted!
NPA miðstöðin

Looking for a person with horse experience!
NPA miðstöðin

Óska eftir aðstoðarkonum í sveigjanlegt hlutastarf
NPA miðstöðin

Aðstoðarmanneskja óskast á Akureyri
NPA miðstöðin

Óska eftir skemmtilegri aðstoðarkonu
NPA miðstöðin

Óska eftir konum ì 50% - 100% vaktavinnu
NPA miðstöðin

Hresst NPA aðstoðarfólk óskast
NPA miðstöðin
Sambærileg störf (12)

Gesta þjónusta / Guest service
Heimaleiga

Ferðaþjónusta fatlaðra - Akstur
Teitur

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Blikaás
Hafnarfjarðarbær

Skemmtilegt starf á heimili fatlaðs fólks
Kópavogsbær

Teymisstjóri í íbúðakjarna í laugardal
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Starfsmaður óskast á skammtímadvölina Móaflöt í Garðabæ
Garðabær

NPA Aðstoðarkona
Þórey Maren

Starfskraftur í heimaþjónustu
Best heima

Aðstoðarmaður óskast
Eggaldin ehf.

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Berjahlíð
Hafnarfjarðarbær

Hláturmild listaspíra óskar eftir aðstoð
NPA miðstöðin

Aðstoðarfólk í eldhús óskast til starfa
Heilsuvernd