

Sumarstarf í heimahjúkrun- tækifæri fyrir sjúkraliðanema
Viltu öðlast reynslu sem skiptir máli í sumar ?
Heimahjúkrun Reykjavíkurborgar leitar að sjúkraliðanemum sem vilja taka skrefið og starfa við fjölbreytt og gefandi starf í sumar. Starfshlutfall er eftir samkomulagi.
Hjá Reykjavíkurborg leggjum við áherslu á faglegt bakland, góða leiðsögn og tækifæri til þess að vaxa í starfi þar sem þú ert hluti af samhentu og öflugu teymi. Starfið býður upp á tækifæri til þess að efla þína hæfni og faglega sýn í daglegu starfi.
Dagarnir eru ólíkir og innihaldsríkir þar sem þú ert á ferð um borgina. Þú kynnist fjölbreyttum hópum íbúa og upplifir hversu mikilvæg þín nærvera og þjónusta skiptir máli fyrir daglegt líf íbúa.
Starfsfólk keyrir á bíl á vegum Reykjavíkurborgar á vinnutíma, sem gerir þér auðvelt að halda góðu flæði þegar þú flakkar á milli heimila.
Möguleiki er að vinna í nálægð við þitt hverfi. Við höfum sterk teymi um alla borg.
Um er að ræða vaktavinnu, dag-, kvöld- og helgarvaktir.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og Sjúkraliðafélagsins.
- Starfað er eftir hugmyndafræði heimahjúkrunar og gæðastefnu velferðarsviðs
- Einstaklingsmiðuð hjúkrun heim til skjólstæðinga í samræmi við nám og verklag
- Skráning í rafræn sjúkraskrárkerfi
- Virk þátttaka í endurhæfingu og stuðningi við íbúa
- Fagleg samskipti og skráning hjúkrunar
- Þátttaka í teymisvinnu
- Sjúkraliðanemi
- Geta unnið í teymi og góð samskiptahæfni
- Geta tileinkað sér nýja tækni og skráningu. Þekking á Sögu sjúkraskrárkerfi er kostur
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Faglegur metnaður og frumkvæði
- Stundvísi
- Ökuréttindi
- Íslenskukunnátta (B1 skv. evrópska tungumálarammanum)
- Hreint sakavottorð skv. lögum og reglum Reykjavíkurborgar
Íslenska


















