
Kópavogsbær
Kópavogur er næststærsta sveitarfélag landsins með yfir 40.000 íbúa. Kópavogsbær er einn af stærstu vinnuveitendum landsins en hjá sveitarfélaginu starfa að jafnaði um 2.700 einstaklingar á fjölbreyttum starfstöðum um allan bæ. Starfsfólki fjölgar um tæplega 2.000 manns á sumrin þegar sumastarfsmenn mæta til starfa og Vinnuskólinn hefur störf. Starfsfólk Kópavogsbæjar sinnir margvíslegum verkefnum sem miða að því að veita íbúum bæjarins sem allra bestu þjónustu og tryggja velferð þeirra um leið.
Hjá Kópavogsbæ eru þrjú fagsvið, menntasvið, umhverfissvið og velferðarsvið og fjórar skrifstofur sem starfa þvert á sviðin, skrifstofa umbóta og þróunar, skrifstofa þjónustu, skrifstofa mannauðs- og kjaramála og skrifstofa áhættu- og fjárstýringar. Öll störf hjá bænum falla undir eitt af þessum sviðum eða skrifstofum.
Mannauðsstefna Kópavogsbæjar byggir á gildum Kópavogs en þau eru framsækni, virðing, heiðarleiki og umhyggja. Kópavogsbær hefur það einnig að markmiði að vera vinnustaður þar sem öll hafa jöfn tækifæri í starfi. Hjá Kópavogsbæ er tekið mið af jafnréttisáætlun en hægt er að lesa sér til um bæði mannauðs- og jafnlaunastefnu bæjarins hér til hliðar. Starfsfólk Kópavogsbæjar hefur einnig fríðindi en fyrir starfsfólk er í boði að fá líkamsræktarstyrk, frítt í sund og víða er mötuneyti.
Kópavogsbær hefur það að leiðarljósi að vera eftirsóknarverður vinnustaður sem styður við heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Lögð er áhersla á að taka vel á móti starfsfólki og veita því markvissa þjálfun þannig að það nái góðum tökum á starfinu og líði vel í vinnunni. Mikil áhersla er lögð á gott samstarf þvert á deildir og svið bæjarins, því saman myndar starfsfólk sterka heild þar sem markmiðið er að fjölbreytt þekking, hæfni og reynsla nýtist sem best.
Kópavogsbær vill fá til liðs við sig öflugt og metnaðarfullt fólk sem er tilbúið að gera góðan bæ enn betri.

Starfskaftur/Félagsliði í sérhæfða dagþjálfun Roðasala
Roðasalir er sérhæfð dagþjálfun fyrir einstaklinga með heilabilunarsjúkdóma sem staðsett er í Salahverfinu í Kópavogi og er rekið af velferðarsviði Kópavogs. Markmið þjónustunnar er að efla virkni, viðhalda færni og styrkja félagstengsl. Með þjónustunni er hægt að lengja dvöl einstaklinga heima, rjúfa einangrun og styðja við aðstandendur.
Við óskum eftir því að ráða til okkar drífandi og öflugan starfskraft eða félagsliða sem hefur áhuga á félagsstarfi aldraðra. Um er að ræða tímabundið starf til 1 árs. Unnið er í dagvinnu frá kl. 08:00-16:00, alla virka daga.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umönnun og aðhlynning
- Stuðningur við félagsstarf
- Stuðningur við tómstundaiðju
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla í umönnun eða sambærilegum störfum
- Félagsliðamenntun er kostur
- Góð íslenskukunnátta
- Jákvæðni og frumkvæði í starfi
- Góðir samskiptahæfileikar
- Þolinmæði og skilningur
- Góð skipulagshæfni
Fríðindi í starfi
Frítt í sund á vegum Kópavogsbæjar og líkamsræktarstyrkur
Auglýsing birt20. janúar 2026
Umsóknarfrestur10. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Roðasalir 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður óskast á skammtímadvölina Móaflöt í Garðabæ
Garðabær

Starfsfólk óskast í umönnun - sumarstarf
Heilsuvernd Vífilsstaðir

Starfskraftur í heimaþjónustu
Best heima

Sumarstörf 2026 - Umönnun á Landakoti
Landspítali

Þroskaþjálfi eða annar háskólamenntaður sérfræðingur á heimili fatlaðs fólks - Berjahlíð
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Berjahlíð
Hafnarfjarðarbær

Starfsfólk í umönnun óskast til starfa
Heilsuvernd

Skemmtilegt starf á heimili fatlaðs fólks
Kópavogsbær

Deildarstjóri óskast í búsetukjarna í Mosfellsbæ
Búsetukjarnar í Skálahlíð

Sumarstarf - tvær aðstoðarkonur óskast saman á dagvaktir
Arnheiður og Árdís NPA

Óska eftir aðstoðarkonum í sveigjanlegt hlutastarf
NPA miðstöðin

Starfsmaður óskast á Ægisgrund
Garðabær