

Sumarafleysingar á Höfða
Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili á Akranesi óskar eftir starfsfólki í afleysingar í sumar:
· Hjúkrunarfræðinemar- vaktavinna
· Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar - vaktavinna
· Almenn umönnun aldraðra- vaktavinna
· Starf í eldhúsi – dagvinna/helgarvinna
· Aðstoð í dagdvöl – dagvinna
· Bílstjóri- dagvinna (meirapróf)
Starfshlutfall og vinnufyrirkomulag er samkomulagsatriði. Störfin henta öllum kynjum. Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Verkefni og ábyrgð eru mismunandi eftir störfum.
Jákvætt viðhorf, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar
Stundvísi, sveigjanleiki
Metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
Nám í heilbrigðis- eða umönnunartengdum greinum er kostur
Íslenskukunnátta
Íslenska










