Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili
Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili
Höfði hjúkrunar- og dvalarheimili

Matreiðslumaður á hjúkrunar-og dvalarheimilinu Höða

Hjúkrunar- og dvalarheimilið Höfði á Akranesi auglýsir stöðu matreiðslumanns lausa til umsóknar. Á Höfða er allur matur matreiddur í eldhúsi heimilisins og matseðill unninn í samvinnu við næringarfræðing með heilsu íbúa að leiðarljósi. Leitast er við að framreiða fjölbreyttan, hollan og staðgóðan íslenskan mat.

Eldað er alla daga vikunnar í eldhúsi Höfða fyrir heimilisfólk, starfsmenn, fólk í dagdvöl og eldra fólk sem kemur og borðar í hádeginu. Einnig er sendur út matur í þjónustumiðstöðina á Dalbraut 4 og heim til eldra fólks.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Yfirumsjón með eldhúsi, verkstýring og gæðaeftirlit. 
  • Dagleg matreiðsla og skipulagning matseðla í samráði við næringarfræðing. 
  • Fjárhagsleg ábyrgð á rekstri í samræmi við fjárhagsáætlun.
  • Skipulagning og ábyrgð á framleiðslu, afhendingu og framreiðslu.
  • Aðkoma að samningagerð við birgja, verktaka og þjónustuaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Gerð er krafa um matreiðslumenntun.
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfileikar.
  • Reynsla af teymisvinnu og færni í að byggja upp og viðhalda góðri vinnustaðarmenningu.
  • Þekking/reynsla af rekstri mötuneytis ásamt mannaforráðum er kostur.
  • Þekking/reynsla af næringarfræði, sérþörfum, gæðum og fjölbreytileika matar er kostur.
  • Góð almenn tölvukunnátta. 
Auglýsing birt4. febrúar 2026
Umsóknarfrestur18. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sólmundarhöfði 5, 300 Akranes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁkveðniPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.Vinna undir álagi
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar