Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur

Afleysingarmanneskja í mötuneyti

Viltu taka þátt í verkefnum með það að markmiði að bæta hreyfanleika fólks?

Við leitum að jákvæðum og duglegum liðsfélaga í afleysingarstarf til 6 mánaða (til 1. sept 2026), með möguleika á framlengingu.

Mötuneyti Össurar framreiðir fjölbreyttan og hollan mat fyrir starfsfólk fyrirtækisins. Starfið felur í sér framreiðslu á mat, uppvask, almenn þrif og aðstoð við önnur tilfallandi verkefni.

Nýlega opnaði nýtt og fallegt rými veitingasviðs fyrir starfsfólk Össurar sem býður upp á spennandi tækifæri í lifandi og skapandi umhverfi.

Vinnutíminn er frá kl. 7-15 eða 8-16 alla virka daga.

Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Við hvetjum fólk til að sækja um starfið óháð kyni og uppruna.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Framreiðsla á mat og undirbúningur
  • Uppvask og frágangur
  • Almenn þrif á svæði mötuneytis
  • Önnur tilfallandi verkefni og aðstoð sem snýr að verkefnum mötuneytis
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla úr sambærilegu starfi er kostur

  • Jákvæðni og þjónustulund

  • Góð samskiptahæfni

  • Drifkraftur og frumkvæði

  • Íslensku- og/eða enskukunnátta skilyrði

  • Snyrtimennska og fagleg framkoma

Fríðindi í starfi
  • Líkamsræktarstyrkur​

  • Samgöngustyrkur​

  • Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir​

  • Heilsufarsmælingar og ráðgjöf
  • Mötuneyti​

  • Árlegur sjálfboðaliðadagur​

  • Öflugt félagslíf

Auglýsing birt3. febrúar 2026
Umsóknarfrestur16. febrúar 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Grjótháls 5, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar