Brasa
Brasa

Þjónar á BRASA veitinga- og viðburðarstaður (Hlutstarf)

BRASA veitinga- og viðburðarstaður, er nýr staður í hjarta Kópavogs - nánara tiltekið í Turninum á Smáratorgi 2.

BRASA býður upp á ríflegt hádegishlaðborð og ljúffengan hádegisseðil, ásamt fjölbreyttum kvöldverðarseðli þar sem réttirnir njóta suðuramerísks og asískrar innblásturs sem gerir matseðilinn bæði spennandi og fjölbreyttan. Á Brasa bar færðu skapandi kokteila, góðan drykk og hlýlega stemningu – fullkomið hvort sem þú ert að njóta í góðra vina hópi eða slaka á eftir annasaman dag.

Nú erum við að leita að einstaklingum í okkar frábæra teymi sem eru tilbúnir að veita gestum framúrskarandi þjónustu. Frábært tækifæri fyrir áhugsama og metnaðarfulla aðila til taka þátt í og móta upplifun gesta á nýjum og spennandi stað, sem á sér enga hliðstæðu á Íslandi. Í boði er hlutastarf; á kvöldin og um helgar.

Athugið að umsækjendur þurfa að vera 20 ára og eldri, og unnið er úr umsóknum um leið og þær berast.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fylgja reglum um áfengisafgreiðslu samkvæmt lögum

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í framreiðslu er kostur en ekki æskilegt 
  • Reynsla og áhugi af þjónastarfi 
  • Söludrifni, áræðni og metnaður í starfi
  • Jákvætt og lausnamiðað viðmót
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Rík þjónustulund
  • Þekking og áhugi á mat og drykk
  • Geta unnið undir álagi
  • Hæfni til að vinna í teymi
Auglýsing birt3. febrúar 2026
Umsóknarfrestur17. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Smáratorg 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar