Fangelsismálastofnun ríkisins
Fangelsismálastofnun ríkisins
Fangelsismálastofnun ríkisins

Sumarstörf í fangelsum

Fangelsismálastofnun leitar að áhugasömu fólki til að starfa við fangavörslu í sumar.

Í boði eru sumarstörf í fjórum fangelsum víðsvegar um landið.

Fangelsið Hólmsheiði er gæsluvarðhalds- og móttökufangelsi fyrir öll kyn, með aðstöðu fyrir afplánun styttri fangelsisrefsinga og vararefsinga. Fangelsið er staðsett við Nesjavallaleið í Reykjavík.

Fangelsið Litla-Hrauni er lokað fangelsi fyrir karlkyns afplánunarfanga og er staðsett á Eyrarbakka.

Fangelsin Kvíabryggju og Sogni eru skilgreind sem opin fangelsi.

Fangelsið Sogni er staðsett í Ölfusi og rekið í nánu samstarfi við Litla-Hraun.

Fangelsið Kvíabryggju er staðsett við Grundarfjörð á Snæfellsnesi.

Við leitum að jákvæðu fólki sem er framúrskarandi í samskiptum og langar að vinna í lifandi og krefjandi starfsumhverfi.

Um er að ræða bæði dag- og vaktavinnu.

Lágmarksaldur umsækjenda er 20 ár.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiðsögn og aðstoð við skjólstæðinga

  • Eftirlit og verkstjórn

  • Þátttaka í allri daglegri starfsemi fangelsa

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun

  • Jákvætt viðhorf og góð færni í mannlegum samskiptum

  • Metnaður, frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt og í teymum

  • Geta til að bregðast skjótt við breytilegum aðstæðum

  • Gott vald á íslensku og ensku

  • Góð tölvufærni

Auglýsing birt15. janúar 2026
Umsóknarfrestur9. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Austurströnd 5, 170 Seltjarnarnes
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar