
Fjölskyldusvið
Múlaþing er nýtt sveitarfélag á Austurlandi með rúmlega 5000 íbúum. Undir Fjölskyldusvið Múlaþings heyra félagsmál, fræðslumál, íþrótta- og æskulýðsmál.

Sumarstörf með fötluðu fólki á Egilsstöðum
Um er að ræða vaktavinnu og í boði eru hlutastörf eða allt að 100% störf, ráðningartíminn er frá 15.maí eða eftir nánari samkomulagi. Næsti yfirmaður er forstöðuþroskaþjálfi búsetuþjónustu.
Í búsetuþjónustu er veitt aðstoð inn á heimilum fatlaðs fólks, við allar athafnir daglegs lífs s.s. heimilisstörf, persónulega aðstoð, félagslega þátttöku og tómstundir.
Leitað er að áhugasömu fólki með góða samskiptahæfileika og almenna kunnáttu í heimilisstörfum og umönnun. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög.
Um er að ræða skemmtileg og fjölbreytt störf sem henta ungmennum 18 ára og eldri sem og eldra fólki.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Aðstoð og stuðningur til þjónustunotenda til að lifa innihaldsríku lífi og til þátttöku í samfélaginu. Markmiðið er að efla færni, auka sjálfstæði, stuðla að jákvæðri sjálfsmynd og auka lífsgæði þjónustunotenda.
Menntunar- og hæfniskröfur
- 18 ára eða eldri
- Sveigjanleiki og færni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Íslenskukunnátta skilyrði.
- Ökuréttindi eru æskileg.
- Þekking og reynsla sem nýtist í starfi.
- Hreint sakavottorð.
Fríðindi í starfi
- Fæði á vinnutíma.
Auglýsing birt6. febrúar 2026
Umsóknarfrestur20. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Lyngás 12, 700 Egilsstaðir
Starfstegund
Hæfni
Almenn ökuréttindiFrumkvæðiReyklausSjálfstæð vinnubrögðUmönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (2)
Sambærileg störf (12)

Hlutastörf við ræstingar í Hveragerði og nágrenni / Cleaning jobs in and near Hveragerði
Dagar hf.

Fjöllbreytt störf við ræstingar á Akureyri
Hreint ehf

Deildarstjóri í íbúðakjarna fyrir fólk með fatlanir
Skrifstofa starfsstöðva og þróunar

Deildarstjóri hjá Klettabæ
Klettabær

Barnagæsla og aðstoð við heimilisstörf
Vinnvinn

Óska eftir félagslyndri og skemmtilegri aðstoðarkonu
NPA miðstöðin

Frístundaleiðbeinandi/ráðgjafi með umsjón
Hitt húsið

Aðstoðarkona óskast í 67% starf á Akureyri
NPA miðstöðin

Skólaliði og frístundaleiðbeinandi í Álfhólsskóla
Álfhólsskóli

Íbúðakjarninn Kleppsvegi óskar eftir stuðningsfulltrúa
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsaðili á Velferðarsviði
Kópavogsbær

Starf við ræstingar á hóteli og íbúðum.
Steinaskjól ehf.