

Sumarstarf á heimili fyrir fatlað fólk – Blikaás
Sumarstarf á heimili fyrir fatlað fólk - Blikaás
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða öfluga og áhugasama starfsmenn til sumarafleysinga á á heimili fatlaðs fólks, sem staðsett er í Blikaási í Hafnarfirði.
Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í vaktavinnu. Starfshlutfall er 80-100% eða eftir samkomulagi og þarf viðkomandi að geta unnið morgun-, kvöld-, nætur og helgarvaktir.
Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs
- Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum
- Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum
- Hafa gaman í vinnunni og vera öðrum fyrirmynd
- Almenn heimilisstörf
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu
Hæfniskröfur:
- Reynsla af sambærilegu starfi kostur
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði
- Frumkvæði og samviskusemi
- Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi
- Bílpróf er skilyrði
- Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)
- Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað
Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri, en skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ragna Dögg Magnúsdóttir forstöðumaður í síma 585-5762 eða á netfanginu [email protected]
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
Umsóknarfrestur er til og með 13. mars 2025
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins
Íslenska










































