

Starfsmaður í heimaþjónustu
Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar leitar eftir metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi í heimaþjónustu í Fjarðabyggð. Að öllu jafna er inni á heimilum og eftir þjónustusamningum hvers og eins þjónustuþega, staðsetningin er því breytileg.
Um er að ræða tímabundið 50-70% starf með möguleika á áframhaldandi ráðningu.
Staðsetning er á Stöðvarfirði og Breiðdalsvík og er æskilegt að búseta umsækjanda sé þar.
Starfsmaður í heimaþjónustu starfar eftir lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og reglum Fjarðabyggðar um stuðningsþjónustu. Markmiðið heimaþjónustu er að styðja eldra fólk til að búa sem lengst á eigin heimilum og að rjúfa félagslega einangrun þeirra. Lögð er áhersla á að viðhalda og örva einstaklinga til bættrar andlegrar, líkamlegrar og félagslegrar heilsu.
- Félagslegt innlit og stuðningur
- Aðstoð við heimilishald, svo sem daglegar athafnir, innkaup og fl.
- Veita persónulega aðstoð
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Þjónustulund og jákvæðni í starfi
- Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi
- Gerð er krafa um að starfsmenn tali og skilji íslensku
- Gerð er krafa um hreint sakavottorð
- Gerð er krafa um bílpróf og eigin bíl til afnota
Íslenska










