

Ferðaþjónusta fatlaðra - Akstur
Bílstjórar óskast
Teitur Jónasson ehf. leitar eftir ábyrgum og þjónustuliprum bílstjóra til starfa í akstur fyrir farþega í ferðaþjónustu fatlaðra og aldraðra. Um er að ræða fullt starf og óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Reynsla og ró í akstri skipta miklu máli í þessu starfi, og við hvetjum því sérstaklega þá sem kunna vel við akstur og daglegt samskiptaumhverfi að sækja um - óháð aldri.
Reynsla af akstri eða vinnu með fötluðum er kostur.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Starfið felst í reglubundnum ferðum um höfuðborgarsvæðið sem þó eiga flestar uppruna í Kópavogi eða Hafnarfirði. Bílstjóri sækir farþega og skilar þeim aftur heim eða á viðkomandi áfangastað sem farþegar hafa pantað.
Mikil áhersla er lögð á hlýlegt viðmót, þolinmæði og fagmennsku, þar sem farþegar treysta á stöðugleika, nærveru og góða samskiptahæfni.
- Krafa er gerð um aukin ökuréttindi (D réttindi og 95 merkingu)
- Reynsla af akstri er kostur
- Krafa er gerð um góða íslensku kunnáttu
- Krafa er gerð um hreint sakavottorð
- Áreiðanleiki og stundvísi
- Reglusemi og snyrtimennska
- Hæfni í mannlegum samskiptum og góð þjónustulund
Íslenska
Enska










