
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin aðstoðar fatlað fólk og aðstandendur við það utanumhald og þá umsýslu sem fylgir því að hafa notendastýrða persónulega aðstoð. NPA miðstöðin veitir m.a. ráðgjöf, heldur fræðslunámskeið, greiðir aðstoðarfólki laun og sér um launatengd mál.
Notendastýrð persónuleg aðstoð (NPA) er þjónustuform sem byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og gerir fötluðu fólki kleift að ráða hvar það býr og með hverjum það býr. Fatlað fólk stýrir því hvernig aðstoðin er skipulögð, hvenær hún fer fram, hvar hún fer fram og hver veitir hana.
Persónulegt aðstoðarfólk aðstoðar NPA notendur við sitt daglega líf, svo það hafi sömu möguleika og ófatlað fólk.

Konur sem kunna að prjóna eða hekla óskast á morgunvaktir
Konur sem kunna að prjóna eða hekla óskast á morgunvaktir
36 ára kona í Vesturbæ Reykjavíkur óskar eftir aðstoðarkonum í hlutastarf á morgunvaktir
Æskilegt er að viðkomandi sé 38 ára eða eldri. Eldri konur sérstaklega velkomnar.
Konan er á einhverfurófi og felst starfið í aðstoða við daglegar athafnir og veita henni félagsskap.
Helstu áhugamál hennar eru prjónaskapur, ýmis önnur handavinna og söngur. Gott er að aðstoðarkonan hafi einnig áhuga á handavinnu.
Athugið að á heimilinu er lítill hundur.
Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og eru laun samkvæmt sérkjarasamningum NPA miðstöðvarinnar við Eflingu og Starfsgreinasambandið.
Vaktir sem vantar á eru:
- Alla mánudaga og þriðjudaga frá kl.9-13
- Annar hver fimmtudag frá kl.9-13
- Alla föstudaga frá kl.9-13
Hæfniskröfur:
- Þolinmæði.
- Frumkvæði.
- Góð samskiptahæfni.
- Að vera hvetjandi og skapandi.
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki er kostur en ekki skilyrði.
- Íslenskukunnátta er skilyrði.
- Bílpróf og aðgengi að bíl er skilyrði.
Starfið hentar mjög vel með skóla eða annarri vinnu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- góð íslenskukunnátta
Auglýsing birt25. febrúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
107 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Mannleg samskiptiÖkuréttindiÞolinmæði
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)
Sambærileg störf (12)

Ferðaþjónusta fatlaðra - Akstur
Teitur

N1 Akranesi hlutastarf
N1

Sumarstarf í skammtímadvöl fyrir fötluð börn - Svöluhraun
Hafnarfjarðarbær

Óska eftir NPA aðstoðarfólki
NPA miðstöðin

Stuðningsfulltrúi í sumarafleysingu á Laugavegi 105
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Umsóknir fyrir ungmenni með fötlun
Sumarstörf - Kópavogsbær

Sumarstarfsmaður á skammtímadvöl - Hnotuberg
Hafnarfjarðarbær

Spennandi sumarstarf í Búsetukjarna Grafarholti
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Sumarstarf í Klettabæ
Klettabær

Arnarskóli - sumarstarfsfólk
Arnarskóli

Starfsmaður í heimaþjónustu
Fjarðabyggð

Sumarafleysingar á heimili fyrir fatlað fólk - Berjahlíð
Hafnarfjarðarbær