

Verkstjóri á skrifstofu Vinnuskóla Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir tveimur starfsmönnum á skrifstofu Vinnuskóla Hafnarfjarðar í sumarstarf. Hjá okkur er mikið að gera á vorin og sumrin og því þurfum við að fá til liðs við okkur drífandi einstaklinga til að sinna skrifstofustarfi tímabundið í sumar.
Í boði er fjölbreytt starf fyrir einstakling sem er vel skipulagður og úrræðagóður.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Tímaskráningar
- Skráning í ráðningarkerfi
- Almenn skrifstofustörf
- Símsvörun
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Reynsla af skrifstofustörfum kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð hæfni í samskiptum
- Hröð og nákvæm vinnubrögð
- Mjög góð tölvukunnátta
Gerð er krafa um að viðkomandi sé með hreint sakavottorð.
Umsóknarfrestur er til og með 11. mars 2026
Nánari upplýsingar um starfið veitir Tinna Rós Steinsdóttir, rekstrarstjóri íþrótta- og tómstundamála, [email protected]
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Hafnarfjarðar.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins
Íslenska
Enska
























