Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Sumarstarf á heimili fyrir fatlað fólk - Erluás

Sumarstarf á heimili fyrir fatlað fólk - Erluás

Hafnarfjarðarbær óskar eftir metnaðarfullum og áhugasömum starfsmönnum til sumarafleysinga á heimili fatlaðs fólks. Unnið er eftir hugmyndafræði Þjónandi leiðsagnar með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilisins.

Spennandi og skemmtilegt starf, með fjölbreyttum verkefnum í vaktavinnu. Viðkomandi þarf að geta unnið helgar, morgun, kvöld og næturvaktir. Starfshlutfall 80-100% eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

· Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs

· Hafa gaman í vinnunni, vera öðrum fyrirmynd og sýna frumkvæði

· Fylgja þjónustuáætlunum og verklagsreglum

· Styðja íbúa til þátttöku í samfélaginu og tómstundum

· Almenn heimilisstörf

· Samskipti við ýmsa þjónustuaðila

· Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni

Menntunar- og hæfniskröfur:

· Reynsla af sambærilegum störfum æskileg

· Þjónustulund og jákvæðni í starfi

· Hæfni í mannlegum samskiptum

· Íslenskukunnátta skilyrði, A2 tungumálastaðall ETM Sjálfsmatsrammi (coe.int)

· Framtakssemi og samviskusemi

· Sjálfstæð vinnubrögð og sveigjanleiki í starfi

· Bílpróf

· Líkamleg geta til þess að sinna verkefnum á vinnustað

Æskilegt er að viðkomandi hafi náð 20 ára aldri og hreint sakavottorð er skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Hrund Brynjólfsdóttir forstöðuþroskaþjálfi, í síma 664-5720, netfang: [email protected]

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Hafnarfjarðar.

Umsóknarfrestur er til og með 8. mars. 2026

Með umsókn skal fylgja kynningarbréf ásamt greinargóðri ferilskrá.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Auglýsing birt23. febrúar 2026
Umsóknarfrestur8. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Erluás 68, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar