Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Skemmtileg sumarvinna á íbúðakjarna í Laugardalnum

Sumarstarfsmenn óskast til starfa í sumar á íbúðakjarnann Austurbrún 6a fyrir einstaklinga með þroskahömlun og skyldar raskanir. Um vaktarvinnu er að ræða þ.e. dag.- kvöld.- nætur.- og önnur hvor helgi. Starfshlutfall getur verið 50-85% eftir samkomulagi.

Austurbrún 6a er íbúðakjarni þar sem 6 einstaklingar búa. Öll þurfa þau aðstoð við allar athafnir daglegs lífs.

Unnið er eftir hugmyndafræði sjálfstæðs lífs og þjónandi leiðsögn með það að markmiði að efla sjálfstætt líf einstaklinga. Starfslýsingar starfsmanna byggja á stefnu Reykjavíkurborgar um þjónustu við fatlað fólk á heimilum sínum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Hlutverk stuðningsfulltrúa/stuðningsráðgjafa er að hvetja og styðja einstakling til sjálfstæðs lífs með þarfir íbúans í huga.
  • Efla félagslega virkni hans og aðstoða hann við allar athafnir daglegs lífs.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð almenn menntun
  • Reynsla í starfi með fötluðu fólki æskileg
  • Góð íslenskukunnátta B1 skilyrði
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni í fyrirrúmi
  • Stundvísi og heiðarleiki í fyrirrúmi
  • Frumkvæði, áreiðanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hæfni til að takast á við krefjandi vinnuumhverfi
  • Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar
Auglýsing birt3. mars 2026
Umsóknarfrestur20. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Austurbrún 6a
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Hentugt fyrir
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar