

Starfsmaður á hæfingarstöð í Kópavogi
Velferðarsvið Kópavogsbæjar óskar eftir starfsmanni til starfa í dagvinnu á hæfingarstöð fyrir fatlað fólk. Óskað er eftir starfsmanni í 100% starf. Vinnutími er 8-16.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf apríl 2026.
Hæfingarstöðin býður uppá dagþjónustu, virkni- og vinnuþjálfun fyrir fatlaða einstaklinga. Vinnustaðurinn leitar að drífandi og áhugasömu starfsfólki til að takast á við fjölbreytt verkefni í sveigjanlegu og skemmtilegu vinnuumhverfi. Sjúkraliði, félagsliði og eða reynsla í vinnu með fólki með fötlun er æskileg.
Unnið er í skipulagðri hópavinnu og einstaklingsmiðaðri vinnu. Ýmiss þróunarverkefni eru í gangi, til að mynda er vilji til að efla listasmiðju og verkefni tengd smíði, keramik og listsköpun af ýmsu tagi.
Þátttaka í faglegu starfi
Einstaklingsmiðaður persónulegur stuðningur við notendur í starfi
Þátttaka í starfi fatlaðs fólks
Háskólamenntun, sjúkraliði og eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
Reynsla og þekking á starfi með fötluðu fólki
Stundvísi og samviskusemi
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Framtakssemi og jákvæðni í starfi
Starfið getur verið líkamlega krefjandi
Góð íslenskukunnátta
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frítt í sundlaugar bæjarins
Á Dalvegi er 36 stunda vinnuvika
Boðið er upp á mat þrisvar á dag, leiðbeinendum að kostnaðarlausu.
Skemmtilegt starfsumhverfi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og Starfsmannafélags Kópavogs.
Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá Velferðarsviði Kópavogs þurfa að skila inn sakavottorði eða veita heimild til að leitað sé upplýsinga af sakaskrá.
Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Líney Óladóttir forstöðuþroskaþjálfi á [email protected]
Enska
Íslenska










